Illur grunur

Í tilefni þessarar umræðu síðustu daga um barnaníðinga og margra áratuga síendurtekin brot þeirra, þá vil ég minna á að þessir karlar eru ekki undantekningalaust "litlir skrítnir furðufuglar" og er ástæða þess að ég nefni það sú, að eftir að hafa lesið umfjöllun um "morðin" í Daníelsslipp, þá minnist ég þess að fram kom að áverkar voru á kynfærum a.m.k. annars drengjanna, sem eitt og sér hefði átt að vekja ákveðnar grunsemdir, fyrir utan öll hin sönnunargögnin. Önnur gjörsamlega óútskýrð mannshvörf, eða öllu heldur örlög drengja eða ungra manna, sem virðast einfaldlega hafa gufað upp hér á síðustu áratugum, gætu sömuleiðis að mínu mati, mögulega átt rætur að rekja til ódæðisverka óþekkts kynferðisglæpamanns.
mbl.is Annar barnaníðingur handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband