Staðgengill Blinkens á Íslandi?

Það er niðurlægjandi að vera Íslendingur á tímum sem þessum, þegar enn ein sæt stelpu fígúra sem hlotið hefur skjótan frama, líkt og sætum stelpum er lagið í þessum heimi okkar miðaldra karla, þykist tala fyrir hönd íslensku þjóðarinnar, þegar hún er einungis að hlýða og framfylgja fyrirmælum annara hagsmuna en þeirra sem hún þiggur þó laun fyrir að þjóna.

Þórdís þessi sannar nú endanlega með hlægilegri fordæmingu sinni á þessum aðgerðum eða fremur aðvörun Írana hver er raunverulegur atvinnuveitandi hennar er, því ekkert heyrðist í henni þegar Ísraelar sprengdu fyrirvaralaust sendiráð Írana í Sýrlandi og lætur sér fátt um finnast um þjóðarmorðið á Gaza, svo ekki sé minnst á fáránlegar ögranir hennar fyrir hönd Íslands gegn Rússlandi.

Öll framkoma og aðgerðir Þórdísar þessarar sanna það svo ekki verður um villst að þeir sem hún þjónar, eru í raun og sanni eftir sem áður, feitir miðaldra karlar, nema nú flestir staðsettir Vestanhafs fjarri þjóð hennar og örugglega með kollhúfur.


mbl.is Ísland fordæmir árásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kolsvartar framtíðarhorfur.

Það virðist nú augljóst að nýr Matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir ætlar að fylgja í fótspor Svandísar Svafarsdóttur og koma í veg fyrir að Íslendingar geti hafið hvalveiðar á komandi vertíð. Þessi viðbrögð koma engum á óvart og síst samstarfsflokkunum, því nú snúast allar aðgerðir stjórnarflokkana hvers um sig, aðeins um að afla sem mests fylgis fyrir næstu kosningar, sem gætu dunið yfir fyrr en varir.

Það eru yfirvofandi skelfilegar hamfarir á Íslandi, hvort heldur vegna heimskulegra og alls ástæðulausra ögrana okkar gegn fyrrum vinveittu kjarnorkustórveldi eða í annan stað vegna staðbundinna náttúruhamfara líkast til sömuleiðis á Reykjanesi og nær örugglega stórfellt fjármálahrun sem þýðir endanlegt gjaldþrot millistéttarinnar og í framhaldinu hrun og gjaldfall ríkisins, sem ekki verður umflúið að þessu sinni með ámóta ræfils leppa á Alþingi líkt og 2008 og nú síðast með nýjan samvinnuþýðan Forseta á Bessastöðum - ef að líkum lætur.

Ef einhverjum þykir ég óþarflega svartsýnn, þá bendi ég á fyrstu viðbrögð eða skorts á slíkum varðandi hvalveiðarnar og auðvitað bikasvart efnahagsástandið á Íslandi, þar sem fnykinn leggur beinlínis frá Kviku og TM björgunaraðgerðunum svo ekki sé minnst á nauðungar sölu Marels, flugfélagið Erni og Flugakademíuna, svo ekki sé minnst á erfiðan rekstur Play og Icelandair.

Að þessu sögðu, þá er erfitt að láta sér til hugar koma bjargráð fyrir framtíð Íslands aðra en þá að í fyrsta lagi að kjósa sannan þjóðernissinna og öryggisventil á Bessastaði, sem kvittar ekki upp á föðurlandssvik, heldur leyfir þjóðinni að kjósa bindandi um EFTA, NATO, ESB og síðast en sannarlega ekki síst aðild að BRICS og auðvitað ætíð að treysta á æðri máttarvöld varðandi duttlunga náttúruafla Íslands.


mbl.is Leggja fram vantrauststillögu í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fátt að frétta af Austur- vígstöðvunum?

Það er von að Selenski óski Bjarna Benediktssyni til hamingju með Forsætisráðuneytið og ekki verður gleðin minni ef Katrín Jakobsdóttir vopnasystir hans nær að hreppa Bessastaði.

Minna er fjallað um þá staðreynd að fleiri A-Evrópuríki virðast nú snúast á sveif með Rússum, líkt og blasir nú síðast við með sigri Pellegrini í embætti forseta Slóvakíu, því Moldóva, Serbía og Hvíta Rússland eru þegar staðfastir bandamenn, líkt og í raun og veru gildir hvað Ungverjaland varðar.

Evrópa er einungis lítill hluti jarðar, hvernig sem á það er litið og ef á heildina er litið, þá eiga Rússar vísan stuðning yfirgnæfandi meirihluta plánetunar, þó áróður og þöggun frétta hér á Vesturlöndum minni einna helst á Volkssturm Göbbels á síðustu dögum Þriðja Ríkisins.

Bein þáttaka Íslands í stríðsrekstri NATO við Rússland er ekki aðeins heimskuleg, heldur er beinn stuðningur íslenskra stjórnvalda við vopnakaup beinlínis stórhættulegur og áreiðanlega tekinn í andstöðu við vilja og samþykki meirihluta landsmanna.

Hvað hagsmuni Bandaríkjana í þessari styrjöld varðar, þá eru þeir augljósir, en fyrir Íslendinga og Evrópu alla getur þetta stríð orðið hrein Ragnarök - og það mögulega í orðsins fyllstu merkingu.

Aðgerðaleysi og skilningur kjörina fulltrúa Íslendinga á hörmulegu framferði gyðinga gegn heimamönnum í Palestínu er á sömu bókina lagt og hefur Ísrael þegar verið ákært fyrir stríðsglæpina og barnamorðin sem einfaldlega þýðir, að þau Katrín, Bjarni og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir geta að öllum líkindum átt yfir höfði sér ákæru um aðkomu eða meðvirkni að þjóðarmorði, ef dómur gengur eins og að líkum lætur í Haag.


mbl.is Selenskí óskar Bjarna til hamingju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver verður næsti sómi Íslands, sverð þess og skjöldur?

Enn bætist í þann hóp manna og ekki síður kvenna, sem ásælast að ná kjöri í æðsta embætti íslenska lýðveldisins. Allt fyrirkomulag komandi kosninga er álíka kjánalegt og virðist loða við flestar eða nær allar aðrar framkvæmdir hér á landi, hvort sem um er að ræða fjármála eða verklegar framkvæmdir eins og hvívetna blasir við - án þess að fara nánar út í þá sálma.

Í stuttu máli lítur út fyrir að næsti forseti þjóðarinnar verði kjörinn með einungis nokkura prósenta fylgi öfgafullra hagsmunatengdra stuðningsmanna, líkt og auðveldlega má gera sér í hugarlund, hvern svokallaðir hinseginn kjósendur og nánustu aðstandendur þeirra munu kjósa í sumar.

Aðrir frambjóðendur sem líklegir þykja til dáða og eiga sér dygga stuðningsmenn eru ýmist vinsælir spaugfuglar, eða yfirlýstir erindrekar erlendra hagsmuna og herskáir NATO dindlar, sem láta sér auðvitað fátt um finnast þegar að raunverulegum framtíðarhorfum föðurlands þeirra kemur.

Því miður verður að segjast að enn syrtir í álinn fyrir lýðveldið unga, þrátt fyrir fögur fyrirheit og ríkulegan heimamund.


mbl.is Katrín býður sig fram til forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilefnislaus stríðsyfirlýsing Bjarna.

Þar kom að því að spillt ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fyllti mæli heimskunar með þessari síðustu yfirlýsingu utanríkisráðherra okkar, nema því aðeins að þetta sé aðeins enn eitt skref í þá helfarar átt sem forsætisráðherra er bendluð við að styðja, en með þessu útspili er fokin út í veður og vind nokkur einasta ástæða fyrir Rússa og félaga, að þyrma helstu höfnum og flugvöllum á Íslandi ef átök stórveldana breiðast frekar út.

Það ætti hverjum heilvita manni að vera ljóst að þessar ögranir og aðgerðir stjórnvalda á Íslandi eru í beinni andstöðu við allar heilagar yfirlýsingar Lýðveldisins um ævarandi hlutleysi.


mbl.is Ísland leggur til 300 milljónir í kaup á skotfærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil er skömm Íslands í dag.

Það dylst engum hvar Íslendingar standa þegar kemur að útrýmingarstríði þungvopnaðra Ísraela gegn heimamönnum í Palestínu, eins og þessi ömurlegi stuðningur okkar í dag sýnir.

Þetta er einmit svona stuðningur sem gyðinga vantar um þessar mundir, því öll sú samúðin sem þeir hafa notið og reyndar kynt rækilega undir frá lokum síðari heimstyrjaldarinnar er algjörlega horfin eftir ólýsanlegt grimmdaræði þeirra á Gaza síðustu mánuðina.

Mikil er skömm leikmanna íslenska landsliðsins að láta dánarstunur barnanna á Gaza sem vind um eyru þjóta, þegar þeir knúsa Ísraelsku þjóðarsálina í dag, meðvitaðir um að hver einn og einasti liðsmaður andstæðingana er eða hefur verið virkur þáttakandi í blóðugu landráninu.


mbl.is Ísraelar sóttu hart að þjálfara Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað hrjáir Bjarna?

Sú tillaga tillaga Bjarna Utanríkisráðherra að setja árlegt framlag frá íslenskum skattgreiðenduma í stríðsrekstur gegn Rússum er mögulega hans bilaðasta frá upphafi og hlýtur að vera einhverskonar skálkaskjól frá einhverjum óþægilegum vafningum.

Fyrir það fyrsta hafa Íslendingar aldrei átt neitt sökótt við Rússa og fyrir aðra en alvarlega minnisskerta eða heilaþvegna þá liggur upphaf Úkraínu deilnana, sem hlutu að leiða til stríðsins alveg ljóst fyrir.

Hér á Íslandi, sem verið var að kjósa landið með hreinasta loft jarðar, er þörf fyrir allar tekjur okkar í eigin rekstur og framfærslu, en ekki í einhverja herskáa pólitíska loftlags vímu þvælu - eins og allir og ekki síst svokallaðir ráðamenn ættu að reyna að fara að skilja.


mbl.is Leggur til langtímastuðning við Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Þórdís kona ein?

Það dylst engum hver fer með stjórn Fjármálaráðuneytis Íslands og dugir þá skammt að vera titluð sem Fjármálaráðherra og og koma með hetjulegar yfirlýsingar, um aðhald og heilyndi, ef blákaldur raunveruleikinn gengur þvert á öll þau fyrirheit, líkt og virðist eiga við um kaup Landsbankans á TM, einungis til að gera hann vænlegri til sölu og næstu einkavæðingar.

Þær eru líka óneitanlega gróflega undarlegar áætlanir Lilju samráðherra hennar um ríflega 40% hækkanir listamannalauna á þessum síðustu og verstu tímum stórs hluta þjóðarinnar.

Benda þessir furðulegu feminísku VAFNINGAR til þess að þjóðarbúið sé á hraðri leið til fj...?


mbl.is Þórdís Kolbrún: Ríkisfyrirtæki á ekki að kaupa tryggingafélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Duga fimm prósent fyrir Bessastöðum?

Enn bætist frambærilegur frambjóðandi við í hóp þeirra einstaklinga sem náð hafa 35 ára aldri og óska eftir að verða næsti Forseti Íslands.

Með núverandi fyrirkomulagi nær sá frambjóðandi kjöri sem flest atkvæði hlýtur eftir að gild atkvæði hafa verið talin að kosningu lokinni.

Það hlýtur að vera á færi flestra að reikna út þann fræðilega möguleika að ef tala frambjóðenda er hærri en tuttugu, þá gæti sigurvegarinn staðið uppi með einungis rúmlega fimm prósenta þjóðarfylgi sér að baki.

Auðvelt er að ímynda sér að ýmsir hlutfallslega fámennir sérhagsmuna hópar kjósi sinn frambjóðanda burtséð frá hagsmunum annara landsmanna og því hlýtur að blasa við, að kjósa verður í a.m.k. í tveimur umferðum til að tryggja að næsti Forseti Lýðveldisins njóti sannarlega fylgis meirihluta þjóðarinnar.

Liggur þetta ekki í augum uppi?


mbl.is Halla Tómasdóttir ætlar í forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytinga er þörf.

Líklega er kjarnorkan skynsamlegasta lausnin við gífurlega orkunotkun milljóna þjóða en auðvitað með hjálp vatns, sólar og jafnvel vinds þar sem því verður viðkomið.

Hér á landi mala vatnsafls- og jarðvarma-virkjanir hreinlega gull fyrir eigendur sína, sem vonandi verðum við þjóðin til frambúðar, en hluti af ímynd landsins ætti að vera áfram ásýnd friðar og náttúrufegurðar, sem býður auðvitað ekki upp á sjónmengandi vindmyllur, né óþörf kjarnorkuver.

Annað er það í orkusóun okkar, að í stað þess að reisa fullkomnar sorpbrennslur t.d. í Vestmannaeyjum og á Vestfjörðum, þá er farið í dýrar og mengandi framkvæmdir við að flytja þúsundir gáma lestuðum með úrgangi og rusli héðan kyrfilega greint og pakkað á kostnað íslenskra heimila í hitaveitu og rafmagns framleiðslu þakklátra Dana og Svía sem kunna einfaldlega að notfæra sér einfeldni eða veiklyndi ónefndra ráðamanna okkar.

Að lokum verður Ísland að snúa aftur að hlutleysisstefnu þeirri sem Lýðveldið var byggt á og hverfa frá þeirri ógæfureið eða helför sem landið er nú á, undir stjórn núverandi vanhæfra og spilltra yfirvalda og væri það því ágæt byrjun að velja nýjan heilan Forseta á Bessastaði í sumar og moka í kjölfarið út úr Stjórnarráðinu.


mbl.is „Við þurfum að vakna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband