Undarlega hægfara varðskip.

Þetta nýja varðskip okkar er reglulega fallegt a.m.k. þegar málningin er í lagi, en við lestur upptalninga kvenkosta hennar, þá kemur í ljós að ganghraði hennar er aðeins 12 hnútar, sem þýðir að flestir togarar og bátar geta einfaldlega skilið hana eftir ef þeim lystir svo.

Að gamni mínu fletti ég upp ganghraða þunglestaðs Helgafellsins í þessari andrá í brælu á leiðinni til Færeyja frá Danmörku og er það á 16,9 hnúta hraða.

Ég þekki ekki hraða Þórs, en hefðbundin herskip og sömuleiðis flugmóðuskip eru oftast gerð fyrir hraða um og yfir 30 hnútum og þykja hægfara ef þau ná aðeins 24 hnútum.
Spurningin hlýtur því að vera hvort Freyja sé ekki öllu heldur stór dráttarbátur en varðskip?


mbl.is Freyja er varðskip flestra kosta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Neikvætt" umhugsunarefni

Það vakti athygli mína þegar fjallað var í útvarpsfréttum um hörmungarástand það sem blasir við í Afghanistan eftir að við (NATO) yfirgáfum landið eftir tuttugu ára hernám, að þulurinn taldi upp ýmsa sjúkdóma og plágur sem væru yfirvofandi, en minntist ekki einu orði á COVID pláguna sem enn-og aftur geysar hjá okkur þræl-bólusettum á Vesturlöndum en virðist sneyða hjá Afríku og öllum þeim þjóðum sem almenningur hefur ekki verið tví-eða þrí bólusettur líkt og hjá okkur.

Hvernig stendur annars á því að fjölmiðlar okkar eru ekki fullir af hryllingsmyndum- og frásögnum af þúsundum eða milljónum deyjandi COVID fórnarlamba í þessum fátæku og fjölmennu löndum?

Svari nú hver fyrir sig, en illar grunsemdir hafa tekið að hreiðra um sig hjá mér.


mbl.is Svandís veitir undanþágu í leikhúsum um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Katrín ráðstafar eftirlaunasparnaði Íslendinga að þeim forspurðum.

Katrín ráðstafar eftirlaunasparnaði Íslendinga að þeim forspurðum, í þágu eigin áhugamála í fjarveru Alþingis.

Lífeyrissjóðir Íslendinga, sem landsmenn greiða í um 15% af launatekjum sínum, hafa lengi verið misnotaðir og misfarið með fjárfestingar þeirra, en ekki hefur áður tekist að ræna þá svo gróflega, eins og nú hefur verið tilkynnt um af forsætisráðherra okkar á erlendri grundu og það í fjarveru þings, sem hvílir óstarfhæft vikum saman og upplýsir kjósendur ekki um hvort s.l. kosningar hafi verið löglegar, eður ei.

Það hefur komið fram að Geir Haarde reyndi að fá því framgengt að lífeyrissjóðirnir yrðu nýttir til að greiða ICESAVE, en var þá blessunarlega stöðvaður af alþingi, því sama og nú hvílir meðvitundarlaust í þessu "heppilega" limbói.

Undarlegast af öllu eru þó að því virðist ótrúlegt áhugaleysi fjölmiðla á þessum gjörningi, eins og sjá má EKKI við lestur Mbl, en eftirfarandi upplýsingar gúglaði ég og fann í Vísi frá 4.nóv:

Þrettán íslenskir lífeyrissjóðir ætla að fjárfesta fyrir rúmlega 4,5 milljarða Bandaríkjadala í verkefnum sem tengjast hreinni orkuframleiðslu og skyldum verkefnum fram til ársins 2030. Það svarar til ríflega 580 milljarða íslenskra króna.Með yfirlýsingunni staðfesta sjóðirnir þrettán vilja sinn til að stórauka grænar fjárfestingar sínar. Þeir styðja þannig við markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í takt við markmið Parísarsáttmálans frá 2015 um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Lífeyrissjóður verzlunarmanna er einn af þessum sjóðum og þátttaka hans er liður í aukinni áherslu sjóðsins á sjálfbærar fjárfestingar.


mbl.is Eftir að komast að niðurstöðu um matskennd atriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með Birgi.

Augljóst er að um samantekin ráð Birgis Þórarinssonar og Sjálfstæðisflokks er hér að ræða.

Þetta er útaf fyrir sig snjöll flétta, en hér er of langt gengið.

Það ætti auðvitað að breyta lögum á þann hátt að ef kjörnir þingmenn velja að yfirgefa flokk sinn, þá komi varamaður í stað þeirra og liðhlaupinn hverfi hreinlega af Alþingi.


mbl.is Kæra borist kjörbréfanefnd vegna Birgis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins þrír kostir í boði.

Greinilegt er nú að endurskoða þarf alla framkvæmd kosninga hér á Íslandi á þann veg að kjósendur geti verið fullvissir um að atkvæði þeirra skili sér óbreytt og óbjöguð í löglega og örugga talningu.

Hvað varðar "talninguna" í Borgarnesi, þá virðist mér einungis um þrjá möguleika að ræða:

1) Einfaldast væri líklega að láta fyrstu talningu og úrslit standa, því þar virtist allt hafa farið löglega fram. Allt klúðrið eða í versta falli mögulegt svindlið átti sér fyrst stað eftir að byrjað var að föndra ólöglega við þá talningu, sem síðan gaf breytt úrslit.

2) Endurtaka kosningu í N-V kjördæmi.

3) Endurtaka kosningarnar með fullu öryggi og auðvitað með alþjóðlegu kosningaeftirliti.


mbl.is Ógilding gæti snert 16 þingmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stelpuspark

Það hlýtur nú að fara að renna upp fyrir landsmönnum og ekki síður konum að knattspyrna kvenna á ekki vinsældum að fagna og það hvorki meðal karla né kvenna, eins og jafnvel þrjóskustu fylgistmenn þeirra hljóta að viðurkenna.

Ég las þessa frétt um dræma sölu aðgöngumiða í gær og nú í dag fæ ég boðsmiða frá Vodafone, svo að ég fæ ekki orða bundist.

Auðvitað er gaman að sjá liprar stelpur keppa í þessum hefðbundnu keppnis íþróttum karla, en að fella niður fréttatíma sjónvarps til að sýna stelpurnar reyna að ná stigum gegn erlendu liði er nokkuð langt gengið.

Ef þetta snýst um jafnrétti, þá ættu konur sjálfar að sýna stuðning og kaupa miða fullu verði, líkt og við strákarnir gerum þegar okkar menn berjast og ekki ætlast til þess að við sjáum um líka um það.


mbl.is Miðarnir á kvennalandsleikinn hreyfast hægt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímabært að fjarlægja skjaldarmerki Kristjáns níunda af Alþingishúsinu.

Í tilefni þess og aðallega vegna níðskrifa íslensks óþokka, þá hefur látlaus minningarskjöldurinn um rithöfundinn Guðmund Kamban sem skotinn var eins og hundur í stríðslok af meðlimum dönsku mótspyrnuhreyfingarinnar án frekari eftirmála, verið fjarlægður af húsvegg fyrrum heimilis hans í Kaupmannahöfn.

Enn og aftur gefur danski krónprinsinn okkur fingurinn og mætir einn þáttakenda á loftlagsráðstefnu til Íslands á einkaþotu og væri það eitt sannarlega ástæða til að mölva nafnspjald árhundraða niðurlægingar af Alþingishúsinu, þó stærra tilefni sé einungis lítil látúnsplata á Austurbrú, sem ekki fékk að standa í friði, heldur var látin víkja sakir illmælgi, rógs og óvandaðrar heimildavinnu, sem þó með þeirri táknrænu aðgerð hefur saurgað nafn og mannorð rithöfundarins Guðmundar Kamban til frambúðar.


mbl.is Minningarskjöldur um Kamban á leið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markviss hræðsluáróður gagnvart Kína.

Það er skondið að fylgjast með þeim skoðanamyndandi áróðri sem stöðugt dynur á okkur Íslendingum, sérstaklega þegar hann hefur lítið með, eða beinist hreinlega gegn raunverulegum hagsmunum okkar, líkt og þegar íslenskir fjölmiðlar tönnluðust alla daga á litríkum frásögnum gleðistúlkunar Stormy Daniels og nú síðast um þessar mundir, daglegar fréttir af gulu-hættuni, ýmist frá Kínahafi eða mótmælum í Hong kong, svo ekki sé nú minnst á hina "grunsamlegu" framvindu G5 tækninar, auk beltis og brautar áætlunarinnar.

Hvað flug þessara véla snertir, sem fréttin snýst um, þá verður að teljast eðlilegt að Kínverjar sýni mátt sinn og megin gagnvart sinni æfafornu eyju, líkt og öll önnur þjóðríki myndu gera undir sömu kringumstæðum. Það hlýtur aftur á móti að vera erfiðara að koma með gild rök fyrir nærveru þungvopnaðra Vesturlanda með Bandaríkjamenn broddi fylkingar þarna í bakgarði Kína, önnur en staðfestingu á hefðbundinni heimsvaldastefnu þeirra í sinni tærustu mynd.

Það er hlálegt að upplifa vaxandi áróður fjölmiðla hér á skerinu gagnvart Kína og öllu kínversku um þessar mundir, því samskipti okkar, vinátta og gagnkvæm virðing hafa á engan hátt breytst, heldur er líklegri skýring, undirlægja íslenskra yfirvalda gagnvart bandarískum áróðri og mögulega þó allra helst, hræddir og huglausir fréttamiðlar hérlendis, með sína óreyndu eða svín-beygðu fréttamenn-eða öllu heldur konur, sem aðalega þýða eftir bestu getu af fyrirlögðum miðlum, en þora ekki atvinnuöryggis síns vegna að sinna sjálfstæðri fréttamensku.

Það olli mér vonbrigðum að sá litli miðill sem ég hafði einna mestar mætur á fyrir hugrekki og sjálfstæð vinnubrögð hér á landi, virðist nú í umfjöllun sinni um erlend málefni hafa söðlað um og ganga nú einna fremst í söguburði og hræðsluáróðri um þetta vinaríki okkar, ámóta þeim sem stundaður var hér, þegar vináttu-og viðskiptatengsl okkar við Rússland voru eyðilögð, sjálfum okkur til mests skaða, en neyðin kennir víst naktri konu að spinna!


mbl.is 38 kínverskar herþotur í lofthelgi Taívans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einföld spurning.

Hvers vegna í ósköpunum eru ekki keyptir metan-vagnar, til að nota allt þetta metangas sem nú er framleitt dýrum dómum til þess eins að brenna því - að því virðist?
mbl.is Stefna á að fjölga rafmagnsstrætisvögnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppskrift að ríkisstjórn.

Auðvitað á hinn sigurvegari kosningana, Flokkur fólksins að leysa Vg af hólmi, því það eru skýr skilaboð kjósenda.

Samstarf þeirra Bjarna og Sigurðar er og verður hnökralaust og þó ákveðin missir sé að persónu Katrínar sjálfrar, þá myndi samstarf við Ingu Sæland og félaga leysa fleirri vandamál en þau myndu skapa, sem ekki verður sagt um núverandi stjórnarmynstur.

Helstu áherslur og kröfur Flokks fólksins samræmast líka í stórum dráttum kosningaloforðum og markmiðum Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, ef betur er að gáð.


mbl.is Áskilja sér nokkra daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband