Góðir Íslendingar.

Notið kosningaréttinn, þó ykkur finnist það vera tilgangslaust. Hafið það einungis að leiðarljósi að fullveldi Íslands verður að verja.

Á næstu árum, eða jafnvel á þessu komandi kjörtímabili verður framtíð okkar litla lýðveldis ráðin.

Það er úr vöndu að ráða við kjörkassann, því gráðug öfl girnast gullin okkar, svo reynið að merkja við það framboð sem þið treystið helst.

Ónýtt eða ógild atkvæði leggjast með sigurvegurunum.


mbl.is Kjörstaðir opnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaldhæðni örlagana?

Í dag boðuðu Ung­ir um­hverf­issinn­ar til lofts­lags­verk­falls við Aust­ur­völl til að mót­mæla ófull­nægj­andi aðgerðum ís­lenskra stjórn­valda í lofts­lags­mál­um og til að hvetja al­menn­ing að kjósa með lofts­lagið í huga. Það kom fram í fréttum RÚV eða Bylgjunar að þetta hefði verið nokkuð fjölmennur hópur, eða samtals u.þ.b. eitthundrað einstaklingar.

Kaldhæðnin við þennan samsöfnuð á Austurvelli er kannski sú staðreynd að þessi fjöldi ungmenna og leiðtoga þeirra er nokkuð sambærilegur við þann óbærilega fjölda ófæddra barna sem deydd eru fyrir fæðingu á hverjum mánuði hér á landi, eins og ekkert sé sjálfsagðra.


mbl.is „Við loftslagið verður ekki samið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vænlegur fjármálaráðherra?

Kristrún Frosta­dótt­ir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, seg­ist ekki hafa fengið eina krónu í kaupauka­greiðslu frá Kviku held­ur hafi hún sjálf ásamt eig­in­manni sín­um nýtt eig­in sparnað þegar hún kom heim úr námi og keypt hluti í bank­an­um.

Það hlýtur að kallast óvanalega mikil hagsýni fyrir námsmann með lítið á milli handana að geta lagt svo drjúgt til hliðar á námsárunum, að sparnaðurinn einn og sér dugi fyrir umtalsverðri fjárfestingu í banka.

Þvílíkt fjármálavit gæti sannarlega komið að notum í fjármálaráðuneytinu.


mbl.is „Ég fékk ekki 1 kr. í kaupaukagreiðslu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver og hver og vill og verður?

Þessar komandi kosningar eru dálítið á þann veg, að ráðvilltur kjósandi neyðist til að beyta útilokunar aðferðinni. Líklega mun það þýða að þegar upp verður staðið að hinn hreinlyndi Flokkur fólksins standi uppi sem sigurvegari kosningana, jafnvel sem næst stærsti flokkur landsins.

Það er ekkert nema mannlegt og skiljanlegt að þau u.þ.b.20% landsmanna sem í sögulegu samhengi hafa séð hagsmunum sínum betur borgið undir erlendum yfirráðum aðhyllist og kjósi þá flokka sem dreymir um að Ísland gangi í Evrópusambandið, en auðvitað gagnast það síður en svo ótengdum almúganum sem eftir mun sitja í verbúðini hér á hjara veraldar.

Það vita allir að einungis örfá prósent þjóðarinnar eiga og ráða hér öllu og með vel alinni hirð sinni og handbendum, þá gæti sá hópur nálgast þriðjung landsmanna, þó landsöluliðið svokallaða sé líka að mestu að finna innan raða þessa sama spillta forréttindahóps.

Eftir stendur rúmur helmingur þjóðarinnar sem minnir undirritaðan töluvert á stóru bandarísku flokkana tvo. Hjá öðrum virðist allt snúast um öfgafullar breytingar og uppstokkun á öllu, með bókabrennum og mannorðs-morðum lifandi og liðinna, en hjá hinum flokknum virðist aðalega vera reynt að halda í þjóðernisleg gildi og hefðir. Mögulega mun það þýða að Miðflokkurinn nái yfir tíu prósenta markið, en að Vg, Piratar og Sósialistar deili með sér rest.


mbl.is Vinstri sveifla þegar vika er eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýju fötin Keisarans.

Ég get ekki orða bundist eftir birtingu samsettrar ljósmyndar af verðlauna tillögu þeirri sem hlutskörpust varð í samkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráð Íslands.

Ég á það líklega sammerkt með litla drengnum úr ævintýrinu, að vera hvorki vígður né innmúraður í félagsskap hirðarinnar, svo að í stað þess að hrópa: Hann er allsber, þá get ég ekki annað en hrópað: Þessi viðbygging passar alls ekki við á þessum stað.

Það hlýtur að vera á flestra vitorði að Stjórnarráðið er ein merkilegasta bygging Íslandssögunar og hlýtur því að eiga tilkall til kurteislegrar umgjarðar, fyrst þessarar stækkunar er þörf.

Það vekur furðu mína að ekki hafi komið fram betri úrlausn í þessari samkeppni, því einfaldur fallegur veggur, eða kassi þarna að baki þessa djásns okkar, hefði myndað hlutlausan bakgrunn við aðalatriðið, í stað þessara "herlegheita" alveg burtséð frá öllu innihaldi verðlauna tillögunar, sem líklega hljóta að vera fyrsta flokks.


mbl.is Skrifstofur víkja fyrir opnum rýmum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breyttir tímar en sama fólkið.

Það skyldi engan undra að nú í framhaldi hinnar svokölluðu "Me too" bylgju, að nú sé upphafin hávær hjáróma kvennakór sem gólar á afsögn Guðna Bergssonar og helst allra karlkyns knattspyrnu frömuða þjóðarinnar í kjölfar vægt sagt, ruddalegrar framkomu drukkins landsliðsmanns á skemmtistað fyrir nokkrum árum.

Það er og hefur ætíð verið þekkt að fólk úr öllum þjóðfélagshópum á það til að sýna ólíðandi og óferjandi framkomu eftir neyslu áfengis og ætti auðvitað einungis að kenna neytandanum sjálfum um hegðunina, svo lengi sem vímugjafinn er annað borð á boðstólnum.

Það er ekki þjóðsaga að konur hafi ætíð notað fegurð og losta til að eignast sterkustu og ríkustu makana sem skiljanlega gat tryggt þeim öryggi og framtíð, en nú á þessum breyttu tímum þar sem stelpurnar okkar hafa loks með aðstoð vísinda og tækniframfara möguleika á að taka fullan þátt á flestum sviðum sem jákvæðir feður og makar kunna líka að meta og láta jafnvel t.a.m. sem okkur finnist knattspyrnuleikir stúlkna æsi spennandi, þá hljómar þessi kvenlæga grimmd smánaðra kvenna og hatrið allt og hefnigirndin í garð (graðra) karla úr öllum takti við þessa nýja og breyttu tíma.

Það þarf oft tvo til að dansa tangó, eins og mætti segja þegar grúppíurnar gamlar og gráar byrja að skríða fram í dagsljósið og krefjast bóta og meðaumkunar fyrir "Good times" og hvað það dæmi snertir hljóta bókstaflega jafnvel örgustu öfga-feministar að láta staðar numið - eða hvað?


mbl.is KSÍ fundar aftur í fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsishetjur eða föðurlandssvikarar?

Líklega væri ráðlegt að anda rólega og fylgjast með framvindu mála í Afghanistan í stað þess að gleypa hrakspár Gulla og leiðtoga hans hjá Atlantshafsbandalaginu hráar, því eins og menn ættu í það minnsta að muna, þá er trúverðugleiki og sannleiksgildi frásagna þeirra kauða ekki ætíð beinlínis sannleikanum samkvæmur.

Það mætti líka velta vöngum yfir því hvort tímabært væri að senda þá Afghani aftur heim, sem eru hér á Vesturlöndum sem flóttamenn frá fyrri stjórnarháttum, nú þegar stjórnarandstaðan hefur náð völdum, því varla stenst að þeir geti einungis verið flóttamenn af landfræðilegum ástæðum.

Það má líka til gagns og gamans rifja upp hvernig við skilningsríku góðmennin komum fram við hermangara og handbendi Þjóðverja eftir hildarleik síðari heimstyrjaldarinnar, eða er það önnur saga?


mbl.is Líklegt að afganskir starfsmenn NATO fái hér skjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógeðfeldar ofsóknir

Það hljómar afskaplega trúlega að efnilegasta rísandi tónlistarstjarna þjóðarinnar óski sjálfur eftir að verða þurkaður úr myndaflokknum Ófærð og enn meiri skítalykt af framburði framleiðandans þess efnis að hún hafi getað orðið við þeirri ósk hans.

Þessi ógeðfeldi afturgengni McCarthyismi sem hér er stundaður gagnvart útvöldum ungum mönnum, sem áður hefðu líkast til verið kallaðir kvennagull eða jafnvel kvennabósar líkist helst skipulögðum ofsóknum, því aðrir margfalt stórtækari, auk verstu perra eru látnir í friði og jafnvel vegsamaðir - eins og allir vita.


mbl.is Bað um að vera klipptur úr Ófærð 3
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Söguleg staðreynd.

Söguleg staðreynd.
Sú staðreynd stendur bjargföst, hvað sem öðru líður, að Time Magasin kaus Adolf Hitler mann ársins 1938 og til að bæta gráu ofan á svart, þá var Jósep Stalín sömuleiðis valinn maður ársins bæði 1939 og 1942.
mbl.is Sagði Hitler hafa „gert fullt af góðum hlutum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver borgar brúsann?

Það er ágætt að vita hverjum Guðlaugur þjónar í embætti sínu, líkt og sömuleiðis á við um Katrínu Jakobsdóttur, því þetta flaður þeirra þjónar varla hagsmunum annara Íslendinga en þeirra eigin, sem auðvitað verður þó aldrei upplýst frekar.

Forveri Gulla, sá sem dró sig skiljanlega úr forystu Miðflokksins og bíður væntanlega færis á betra veðri, eða með öðrum orðum sendiherra-eða ráðuneytis jobbi ef Sigmundur nær áhrifum á nýjan leik, lék líkt hlutverk þegar hann lét mynda sig á götuvígjum sviðsetningarinnar í Kænugarði, sem reyndist okkur dýrkeypt- eins og margir vita.

Það fer ekki á milli mála að valdahlutföll í heiminum eru að breytast og einungis skiljanlegt að Bandaríkjamenn beiti öllum brögðum gegn Rússum og sérstklega Kínverjum og eru því virkjaðir allir falir kostir, því eins og fyrrverandi vara-utanríkisráðherra Bandaríkjanna viðurkenndi, þá borguðu Kanar fimm billjón, eða milljarða dollara fyrir Úkraínu valdaránið og því er spurningin hvað þeir skyldu nú vilja kosta til?


mbl.is Fullviss um að Hvíta-Rússland muni öðlast frelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband