Forgangsröðun frétta í íslenskum fjölmiðlum og grímulaus aðför gegn Útvarpi Sögu.

Fyrstu tvær fréttir á síðum Mbl.is eru annars vegar áframhaldandi rógsherferð gegn lýðræðislega kjörnum forseta Bandaríkjanna og síðan enn og aftur upprifjun á illri meðferð gyðinga á tímum Þriðja ríkis nazista.

Burtséð frá gæðum íslenskrar blaðamennsku, þá eru þessar tvær fréttir lýsandi dæmi um skoðana kúgun þá er tíðkast nú að þröngva upp á almenna borgara í nafni og undir merkjum hugtaka eins og mannréttinda, kvennfrelsis og náungakærleika. - Þvílík öfugmæli.

Hvað leiðarljós flestra íslenskra fjölmiðla með RÚV í broddi fylkingar þeirra andstæðinga Donalds Trump snertir, þá eru þeir í raun og veru fjármagnaðir og þeim stýrt af helstu vopnaframleiðendum og stríðsskipuleggjendum sögunar, þeirra á Wallstreet og hvað hina tugguna varðar, þá er endalaus upprifjun svokallaðar helfarar gyðinga úr hópi hundruða eða þúsunda helfara annara þjóða, svo ekki sé nú minnst á núverandi miskunarlausa ógnarstjórn Ísraelsmanna sjálfra á heilum kynslóðum Palestínumanna í fangabúðunum á Gaza og Vesturbakkanum, fremur hráslagaleg þversögn.

Það er í anda þessarar fréttamennsku og öfugmæla sjónarmiða, að nú ætla yfirvöld að því virðist undir stjórn 365 miðla að þvinga einu óháðu útvarpsstöð Íslands til að loka öðrum og öflugri sendi stöðvarinnar, ella greiða 500 þúsund krónu dagsektir, sem auðvitað þýðir gjaldþrot stöðvarinnar.

Þessum fasista aðgerðum stjórnar Póst og fjarskiptastofnun Íslands undir stjórn Innanríkisráðherra.


mbl.is „Andskotans sama hvað Trump vill gera“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Hvenær hafa Ríkisstofnanir þolað samkeppni? 

Hrossabrestur, 20.11.2016 kl. 15:35

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Því miður á þessi aðför að eina óháða fjölmiðli þjóðarinnar, þar sem almenningi gefst kostur á að viðra skoðanir sínar, sér dýpri rætur en öfund og minnimáttarkennd.

Skoðanakúgun og valdníðsla á sér því miður frjósaman jarðveg hér á Íslandi, þar sem æðstu embættismenn standa berleggjaðir með buxurnar á hælunum frammi fyrir alþjóð, eftir að hafa verið staðnir að óheilyndum og er ég þá sem dæmi að vitna til augljósrar vanhæfni eða jafnvel mútuþægni bankastjóra Landsbankans og sjálfs Ríkissaksóknara lýðveldisins.

Jónatan Karlsson, 20.11.2016 kl. 16:07

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það er stórfrétt þegar áhrifamikill þingmaður og fyrrum framlbjóðandi til forseta Bandaríkjkanna skuli tala með þessum hætti gegn væntum forseta úr eigin flokki þar sem hann stendur fastur á prinsippum sem snúa að alþjóðalögum. Það er því ekkert athugavert við það að þetta sé meðal fyrstu frétta og fáránlegt að tala um það sem hlutdrægni.

Sigurður M Grétarsson, 20.11.2016 kl. 20:12

4 identicon

Þeir eru gjörsamlega að fara yfirum á Morgunblaðinu.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 20.11.2016 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband