Hver verður næsti sómi Íslands, sverð þess og skjöldur?

Enn bætist í þann hóp manna og ekki síður kvenna, sem ásælast að ná kjöri í æðsta embætti íslenska lýðveldisins. Allt fyrirkomulag komandi kosninga er álíka kjánalegt og virðist loða við flestar eða nær allar aðrar framkvæmdir hér á landi, hvort sem um er að ræða fjármála eða verklegar framkvæmdir eins og hvívetna blasir við - án þess að fara nánar út í þá sálma.

Í stuttu máli lítur út fyrir að næsti forseti þjóðarinnar verði kjörinn með einungis nokkura prósenta fylgi öfgafullra hagsmunatengdra stuðningsmanna, líkt og auðveldlega má gera sér í hugarlund, hvern svokallaðir hinseginn kjósendur og nánustu aðstandendur þeirra munu kjósa í sumar.

Aðrir frambjóðendur sem líklegir þykja til dáða og eiga sér dygga stuðningsmenn eru ýmist vinsælir spaugfuglar, eða yfirlýstir erindrekar erlendra hagsmuna og herskáir NATO dindlar, sem láta sér auðvitað fátt um finnast þegar að raunverulegum framtíðarhorfum föðurlands þeirra kemur.

Því miður verður að segjast að enn syrtir í álinn fyrir lýðveldið unga, þrátt fyrir fögur fyrirheit og ríkulegan heimamund.


mbl.is Katrín býður sig fram til forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Sómi... dream on.

Ásgrímur Hartmannsson, 5.4.2024 kl. 16:38

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Naglinn sleginn beint á höfuðið.

Guðjón E. Hreinberg, 5.4.2024 kl. 18:46

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Allir sem eiga um sárt að binda frá ráninu 2008 hljóta að eiga erfitt með að velja Katrínu og sama á líka við Baldur vegna stuðnings hans við að láta þjóðina axla Icesave möglunarlaust.

Þó lítið fari fyrir kristnum siðum og menningu hér á landi, þá er varla við hæfi að kjósa augljósa andstæðinga til æðstu metorða, til þess eins að veita leifunum nábjargirnar undir krosslausum svörtuloftum Bessastaðakirkju.

Jónatan Karlsson, 6.4.2024 kl. 07:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband