Lítillátar, ljúfar og kátar konur í stjórnmálum.

„Ég bauð mig fram í 1.-3. sæti og ég var í 3. sæt­inu, þannig að ég var í raun­inni að óska eft­ir áfram­hald­andi stuðningi, og ég er af­skap­lega ánægð með það,“ seg­ir Lín­eik Anna Sæv­ars­dótt­ir, alþing­ismaður Þá seg­ir Lín­eik fagnaðarefni að tvær kon­ur skipi efstu þrjú sæti á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu og tel­ur hún Fram­sókn­ar­flokk­inn setja með því gott for­dæmi.

Þess má geta að SDG hlaut 170 atkvæði af 238 en Líneik tvö sem líklegt verður að teljast hafa verið hennar eigið auk líklega eiginmannsins.


mbl.is Líneik segir markmiðinu náð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stendur Sigmundur af sér atlöguna?

Nú um helgina verður framtíð Framsóknarflokksins ákveðin.

Það hefur lengi blasað við að flokkurinn hefur verið klofinn í tvær fylkingar, annars vegar þjóðernissinnaða fylkingu Sigmundar í anda Jónasar frá Hriflu og hinsvegar þann hluta Framsóknar sem aðhyllist aðrar og jarðbundnari hugsjónir á borð við glansandi frægð og frama á sviði alþjóðahyggjunar.

Það er hrollvekjandi að fylgjast með hvernig helstu skrautfjaðrir Framsóknar, þessa stolta stórveldis okkar unga lýðveldis hafa á síðustu misserum verið reyttar af hver á fætur annarri.

Nú síðast auðvitað sviðsett leifturárás RÚV og spunameistara ESB á Sigmund í beinni útsendingu, en ekki síður ótímabærar og grunsamlegar brottfarir björtustu vona og sannarlega vinsælustu þingmanna flokksins og er þá helst látið í veðri vaka vegna aldurs og annarra starfa, þó þau Vigdís og Frosti séu eiginlega bæði ung og aukinheldur atvinnulaus.

Það vekur þó mesta furðu að Framsóknarmaðurinn sem hreinlega tók virkan þátt í uppreisninni í Kænugarði og var samtímis Utanríkisráðherra okkar og sá sem lýsti yfir þátttöku Íslands við fjandsamlegar viðskiptahindranir ESB gegn Rússum, skuli nú hafa lýst yfir stuðningi við Sigmund.


mbl.is Sigmundi spáð sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. september 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband