Hin sanna ásjóna Hillary Rodham Clinton.

Án þess að reyna að útskýra kenndir þeirra landa minna sem aðhyllast og afsaka hörmulega aðskilnaðarstefnu þá sem gyðingar stunda nú fyrir opnum tjöldum, þá tek ég ofan hatt minn fyrir þeim rithöfundum sem höfðu manndóm og þor til að sniðganga bókmenntahátíðina Iceland Noir og skrifuðu undir eftirfarandi yfirlýsingu:

"Hillary Cl­int­on beit­ir sér op­in­ber­lega gegn því að vopna­hlé verði gert á yf­ir­stand­andi þjóðarmorði Ísra­els­hers í Palestínu. Einnig hef­ur hún um ára­bil notað sinn breiða vett­vang til þess að dreifa áróðri Ísra­els­stjórn­ar og röng­um upp­lýs­ing­um með til­heyr­andi skaða fyr­ir palestínsku þjóðina,” seg­ir í opnu bréfi sem höf­und­arn­ir skrifa und­ir.

"Með því að bjóða henni tók Ice­land Noir-hátíðin af­stöðu og með því að halda boðinu til streitu und­ir­strikaði hátíðin póli­tíska af­stöðu sína, með stríðsglæp­um og þjóðarmorði,” seg­ir þar einnig.

Persónulega er ég að lokum sannfærður um að helsta ástæða þess að Hillary kom öllum á óvart og tapaði með minnsta mun fyrir Donald Trump í forsetakosningunum 2016 var sú að fjölmargir heiðvirðir Demókratar misstu hreinlega lystina til að kjósa hana, eftir að hafa séð fréttaskot af henni skrækja af gleði þegar hún fylgdist með beinni útsendingu CNN sýna limlest lík Gaddafi dregið á eftir pallbíl uppreisnarmanna í Lýbíu.


mbl.is Tugir höfunda sniðganga Iceland Noir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Bæn Ísraels:

Þú Guð lofsöngs míns, ver eigi hljóður, því að óguðlegan og svikulan munn opna þeir (Íslam og Vinstrið) í gegn mér, tala við mig með ljúgandi tungu.

Með hatursorðum umkringja þeir mig og áreita mig að ástæðulausu.

Þeir launa mér elsku mína með ofsókn, en ég gjöri ekki annað en biðja.

Þeir launa mér gott með illu og elsku mína með hatri.

Set (Guð) óguðlegan yfir mótstöðumann minn (Hamas), ákærandinn (Satan) standi honum til hægri handar. Hann gangi sekur frá dómi og bæn hans (til Alla) verði til syndar.

Dagar hans verði fáir, og annar hljóti embætti hans.

Börn hans verði föðurlaus og kona hans ekkja. Börn hans fari á flæking og vergang, þau verði rekin burt úr rústum sínum. (Sálmur 109:1-10).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 17.11.2023 kl. 23:15

2 identicon

Sæll Jónatan sem oftar; sem og aðrir gestir þínir !

Þakka þjer fyrir; stutta og hnitmiðaða lýsinguna á kerlingar

úrþvættinu Hillary Clinton, ekkert ofsagt þar, um.

Guðmundur Örn; stórfrændi !

Er ekki mál til komið; að þú farir að leita þjer hjálpar við

linnulausum tilvitnunum og stagli, úr Gamla Testamentis þvælunni,

ágæti drengur ?

Nema; þú tækir upp á því, að tigna Netanyahu og hans gengi, á svona viðlíka máta - og hinn ósýnilega guð þinn Jehóvah, Guðmundur minn ?

Jehóvah og Allih þeirra Múhameðsku; eru svona ámóta forynju- og illfyglis meinvættir hugmyndafræðilega, þegar nánar er skoðað, Guðmundur Örn, reyndu:: að fara að vakna frá þessu dellum þínum, maður.

Með beztu kveðjum; sem áður, af Suðurlandi /    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.11.2023 kl. 00:09

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sælir verið þið frændur og heiðurskarlar, báðir tveir.

Ég minnist þeirra tíma þegar Moshe Dayan og gyðingar áttu óskipta virðingu og stuðning minn og auðvitað líka skilning og samúð eftir hörmungar ofsókna heimstyrjaldarinnar, líkt og átti að ég held við alla aðra Íslendinga og vesturlandabúa.

Nú á síðustu áratugum hafa Ísraelsmenn glatað því áliti jafnt og þétt, þrátt fyrir blindan áróður og stuðning Bandaríkjamanna, því framkoma þeirra gagnvart Palestínufólkinu er gjörsamlega óásættanleg og vekur upp spurningar um hvernig þjóð sem sjálf hefur gengið í gegnum ólýsanlegar hörmungar, getur verið svo grimm og tilfinningalaus, þegar færið gefst.

Ég óttast að við eigum mögulega eftir að verða vitni að skuldadögum gyðinga a.m.k. í Ísrael, því að fyrir utan að glata samúð heimsins, þá held ég að það sé alveg ljóst, að við dráp hvers palestínsks barns, konu eða manns, þá verða til tugir, hundruð eða þúsundir andstæðinga sem munu krefjast hefnda.

Jónatan Karlsson, 18.11.2023 kl. 11:18

4 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Og mæl til þeirra:

Svo segir Jehóva Guð: Sjá, ég sæki Ísraelsmenn til þjóðanna, þangað sem þeir fóru, og saman safna þeim úr öllum áttum og leiði þá aftur inn í land þeirra. (Esekíel 37:21).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 18.11.2023 kl. 12:27

5 identicon

Sælir á ný; Jónatan og Guðmundur Örn !

Jónatan !

Þakka þjer; ágætar viðbætur í athugasemd þinni (nr. III) viðvíkjandi

vaxandi yfirgangi og ofríki Ísraelsmanna, á alla vegu - lið:: hvert þykist vera Guðs útvalið, þ.e.a.s Jehóvah´s þeirra sjálfra, en hafa einnig náð óhuganlegri tækni Þriðja ríkis Þjóðverjanna (og Austurríkismanna 1939 - 1945) í sálgun á vopnlausum Filisteunum (Palestínumönnum:: á Gaza strönd sem og á Vesturbakka Jórdan árinnar) undir yfirskyni Hamas liða upprætingarinnar - má reyndar furðu sæta, þolinmæði Hizbollah sveitanna Líbönsku (og Írönsku) Líbanon megin frá.

Bezt væri; tækist að semja við Síberíu Rússa um, að útvgea Gyðinga samfjelaginu einhvern óbyggðan skika þar eystra, og næst Norður- Íshafinu í framtíðinni og sjá svo til, hvort það dygði ekki til að kæla niður kreddur Ísraelsmanna, sem einhverrar yfirburða þjóðar.

Guðmundur Örn !

Útilokum ekki; tilvist annarra Guða en þíns:: sbr. þá fjelaga á myndinni hjer, að neðan :

Scholar Made the Ultimate Sacrifice to Save Ancient Palmyra Treasures from  the Hands of ISIS | Ancient Origins

  Sjáðu Guðmundur minn; hvað þeir taka sig vel út, þeir Aglibol - Baalshamin og Malakbel, hinir víðkunnu Forn- Arabísku Guðir, engin skömm að þeim frekar en Jehóvah þínum, þeir eru þó sýnilegir öllu venjulegu fólki frændi.

Ekki síðri kveðjur; hinum fyrri /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.11.2023 kl. 14:19

6 Smámynd: Loncexter

Gyðingar vilja sem minnst af jesú vita og hans fylgjendum. Þess vegna er mér fyrirmunað að skilja hvað margir Kristnir leiðtogar hampa þeim sí og æ.

Þegar anticristur kemur fram (mjög stutt í það) munu núverandi gyðingar telja hann þann rétta.

Fæstir af þeim munu hitta þann rétta þegar hann kemur aftur.Gamla T. Segir aftur og aftur, að ísrael sé ísrael, og júda sé júda. (sitt hvor hluturinn)

Loncexter, 18.11.2023 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband