Ordnung muss sein.

Skipun þessarar vesælings stúlku í starf sóttvarnarlæknis minnir helst á þegar Lárus Welding var keyptur til að taka skellinn í Glitni í andaslitrum bankans hérna um árið.

Auðvitað er hluti af ráðningarsamning hennar að verja gerðir fyrirrennara sinna, svo henni er nokkur vorkun.

Ég get ekki að því gert, að þegar ég les um dóma yfir tíræðum öldungum sem t.a.m. unnu sem unglingar í skrifstofuvinnu á vegum nazista í síðari heimstyrjöldinni, að hvort þríeykið alræmda verði notað sem Grýlur á óþæg börn í komandi framtíð og fallegu hjúkrunarkonurnar úr Laugardalshöllinni neyðist til að flýja gjörðir sínar til Argentínu eða lengra.


mbl.is Kannast ekki við rannsóknirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Snilldarleg færsla. Þetta er hverjum ljóst sem hugleiða þetta nánar, en þeir sem fatta þetta virðast ekki þora að fjalla um það. 

Hvernig getur hún hermt eftir Þórólfi í þessu vitundarleysi þeirra (eða látið líta svo út). Virðast mjög æfð svör en ekki er auðvelt að skilja hvernig fólkið í æðstu embættunum á þessu sviði er svona ófrótt um kenningar - eða staðreyndir fjölmargra andstæðinga þeirra. 

Alltaf er það að verða augljósara að fólkið sem kýs fjórflokkinn lætur viljandi blekkja sig og það setur líka kosningarnar í Bandaríkjunum í rétt ljós, hvernig Trump er að berjast við dáleiddar mannverur.

Ingólfur Sigurðsson, 5.8.2023 kl. 23:56

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Þakka þér kærlega innlitið Ingólfur.

Jónatan Karlsson, 6.8.2023 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband