Afmæli hernáms Íslands.

Í dag, eða þann tíunda maí árið 1940 var Ísland hernumið af breskum her, þrátt fyrir að einhverjir telji sjálfum sér og öðrum trú um að aðgerðin hafi einungis verið í þágu okkar, en einmitt þau sömu rök notuðu Þjóðverjar fyrir hernámi Danmerkur og Noregs mánuði áður og reyndar samdægurs fyrir hernámi Hollands, Belgíu og Lúxemborgar, eins fjarstæðukennt það nú er, eins og öllum ætti að vera ljóst.

Nú er öldin önnur, því Þýskaland og Japan sem töpuðu stríðinu og eru reyndar enn hernumin af Bandaríkjamönnum, þrátt fyrir að sama verndar-tuggan sé þar enn við lýði, en nú breggður svo við að einmitt gömlu nasistarnir og synir sólarinnar eru orðnir bestu ljúflingar , en Rússarnir sem fórnuðu flestum mannslífum í styrjöldinni eru nú orðnir vondu karlarnir.

Hvergi í fréttum dagsins hef ég heyrt minnst á þetta sorglega hernám okkar, né reyndar margar aðrar fréttir sem huglausir og/eða vanhæfir blaðasnápar þessa bleðils og annara hér í ástandinu ættu að fjalla hreinskilningslega um, eða eins og skáldið sagði: Afsakið meðan ég æli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þakka þér fyrir sannan og snjallan pistil Jónatan. Bæði er ég sammála þessari söguskoðun sem er of sjaldgæf og svo gaman að þú vitnir í meistara Megas!

Ingólfur Sigurðsson, 10.5.2023 kl. 18:29

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Ingólfur.

Þakka þér kærlega fyrir innlitið og sérstaklega þó fyrir beinskeyttar færslur þínar.

Jónatan Karlsson, 10.5.2023 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband