Er Benjam­in Net­anya­hu holdgervingur hins illa?

Ég er óravegu frá að hafa einhverja yfirnáttúrulega hæfileika, en þegar ég sé skýrar nærmyndir af þessum forsætisráðherra Ísraels, þá fer samt ónota hrollur um mig.

Ég veit alveg að það eru mörg illmenni og óþverar á ferðinni í háum og lágum stöðum, sum dásömuð og önnur fyrirlitin, rétt eins og pólitískir vindar blása og okkur ætlað að fylgja í hlýðnum hópi.

En stundum gengur þó hræsnin og tvískinnungurinn fram af mér, eins og þegar kemur að auðsveipninni gagnvart framkomu Ísraelsmanna gegn svívirtum og undirokuðum Palestínumönnum, sem er svo viðurstyggileg, að það er hreinlega ógeðslegt að þetta hyski sem þykist vera trúað og gott fólk hér í nærumhverfinu, geti horft framhjá og afsakað sig með að við hefðum nefnilega verið svo vond við gyðinga fyrir meira en tveim mannsöldrum síðan.


mbl.is Netanyahu í hefndarhug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það eru til kenningar um það að við Íslendingar séum að stofni til Benjamínítar, -hreinasta afbrygði ættkvíslar Benjamíns á jörðinni.

Hvað Benjamín Netanyahu áhrærir þá deili ég efa mínum með þér og tek undir með þér að tvískinnungurinn og hræsnin haldast í hendur.

Góða páska Jónatan.

Magnús Sigurðsson, 7.4.2023 kl. 19:34

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Hvað tvískinnunginn og hræsnina varðar, þá eigum við, eða öllu heldur leiðtogar okkar hana óskipta, en hvað gráðuga og miskunarlausa framkomu gyðingana í Ísrael varðar, þá er það jafnvel enn sorglegara, því einmitt þeir eiga marga hæfustu og frambærilegustu einstaklinga mannkyns innan sinna raða - og auðvitað - Gleðilega Páska.

Jónatan Karlsson, 7.4.2023 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband