18.12.2021 | 15:45
Háðulegur Hæstiréttur Íslands.
"Mér sýnist íslenska réttarríkið hafa staðist prófið,“ segir lögmaður dánarbús Kristjáns Viðars Júlíussonar eftir að yfirvaldið dæmdi nokkrum fórnarlömbum Guðmundar-og Geirfinnsmála fébætur, en skiljanlega er lögmaðurinn að reyna að verja heiður og mannorð kollega sinna með þessari fráleitu fullyrðingu sinni um skaðabætur ódæðisins.
"Það er viðurkennt að Kristján þurfti að þola vanvirðandi meðferð af hálfu ríkisins og mikinn órétt um langan tíma sem litaði allt hans líf frá tvítugu og fram í andlátið. Dómurinn staðfestir að Kristján hafi orðið fyrir alvarlegum réttarspjöllum og að opinber umræða hafi litað allt hans líf og öllum sjónarmiðum ríkisins um fyrningu verið hafnað"
Það má vera að með ótrúlegum styrk, þá hafi nokkur fórnarlamba þessara spunameistara myrkraaflana allt frá lögreglu til dómara Hæstaréttar auðnast að koma lífi sínu á réttan kjöl eftir afplánun, en þeir Sævar, Kristján og Tryggvi eru látnir og þar fyrir utan er enn reynt að klína rætnum uppspuna rannsóknaraðilana á Erlu, sem situr óbætt hjá garði.
Því skal líka haldið til haga, að illgjarnt slúðrið og kjaftasögurnar eftir handtökur þessara ólánsömu ungmenna höfðu hörmulegar afleiðingar og splundruðu heilu fjölskyldunum til frambúðar, eins og margir ættu enn að muna og kannast við.
Ef einhver vilji væri til staðar hjá yfirvöldum, þá ætti enn að vera ráðrúm til að fá sjálfstæðan utanaðkomandi rannsóknaraðila til að leysa þessi mál, þó ekki væri til annars en að upplýsa tilefni feluleiksins og til að dæma hina sannarlega seku í þessum hörmulegu dómsmorðum.
Sýnist íslenska réttarríkið hafa staðist prófið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Meitlarar hófu að gera þetta mál upp þegar fáeinum löglærðum aðilum var bent á að þeir ættu að stefna þeim sem gerðu skýrslurnar sem upprunalegu dómarnir voru byggðir á. Þetta óttuðust Meitlarar meira en að gera upp dómsmórðin.
Guðjón E. Hreinberg, 18.12.2021 kl. 22:08
Já, Guðjón. Hvað eru nokkur hundruð milljónir á milli vina gagnvart ragnarökum?
Jónatan Karlsson, 19.12.2021 kl. 09:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.