Spútnik V eða Sinovac núna - takk fyrir.

Það er undarlegt og nálgast að vera glæpsamlegt að yfirvöld á Íslandi hafi ekki tafarlaust gripið til allra nærtækra ráða til að nálgast öll fáanleg bóluefni gegn Covid 19 veirunni, í stað þess að hengja sig á einhverja heilaga ESB samninga, sem jafnvel Þjóðverjar sjálfir sniðganga, en venjunni samkvæmt eru Íslendingar auðvitað kaþólskari en sjálfur páfinn, eins og hér sannast svo rækilega.

Þessi þrælslund og höfðingja sleikjuskapur er skammarlega óþolandi, líkt og þegar forsetinn sat heima og lét banna sér að fara og standa með landsliðinu í Moskvu og svo ekki sé talað um ítrekaðan stuðning "okkar" við sprengjuárásir og stríðsglæpi "góðu" þjóðanna, þegar við á.

Persónulega hugnast mér betur hefðbundnar framleiðslu aðferðir bóluefnis Rússa og Kínverja, fremur en einhverjar RNA tilraunir vesturlanda, en mergurinn málsins er einfaldlega sá að einhver úr ríkisstjórn okkar þarf líklega ekki annað en að brjóta heimskulegan oddinn af fyrrnefndri þrjósku eða heimskulegu stærilætinu og taka sér síma í hönd og hringja í sendiherra þessara tveggja vinveittu þjóða og óska eftir aðstoð.


mbl.is Pútín veðjaði á réttan hest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Þarna er vel að verki staðið í skynseminni Jónatan. hafði ekki tekið eftir þessu fyrr. Bravó.

Halldór Jónsson, 13.2.2021 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband