Afhverju er Ísland aftast á merinni.

Í ljósi digurbarkalegra yfirlýsinga heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnar síðustu mánuði vekja fréttir af bólusetningum heimsbygðarinnar nokkrar óþægilegar spurningar.

Bólu­setn­ing­ar eru hafn­ar í Kína, Rússlandi, Kan­ada, Banda­ríkj­un­um, Sviss, Serbíu, Singa­pore, Saudi-Ar­ab­íu og Bretlandi og Þýska­land, Slóvakía og Ung­verja­land hófu bólu­setn­ingu strax í gær þegar bólu­efnið barst.

Evr­ópu­sam­bands­rík­in auk Nor­egs fengu hvert um sig tæp­lega 10.000 skammta bólu­efn­is í gær. Sam­bandið hef­ur tryggt sér yfir tvo millj­arða skammta af bólu­efni frá nokkr­um fram­leiðend­um, en íbú­ar inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins eru tæp­lega 450 millj­ón­ir.

Greinilegt er að eitthvað stórfellt bjátar á, en því miður er almenningi haldið í óvissu um raunverulegar ástæður þess að EFTA ríkið Ísland virðist flokkað með fátækum ríkjum þriðja heimsins þegar að kemur afhendingu mótefna gegn hinni bannvænu veiru.

Hver raunveruleg ástæða þess, að við, þessir helstu taglhnýtingar Evrópusambandsins eru settir skör lægra en öll fyrrnefnd ríki þegar kemur að afhendingu mótefna væri auðvitað fróðlegt að vita, en t.a.m. skyndileg og alls ótímabær áform um söluferli Íslandsbanka, sem ber augljós merki örvæntingar gæti e.t.v. svarað því, þó bæði fjármálaráðherra og núverandi seðlabankastjóri láti í veðri vaka að allt sé í himna lagi, eins og þeim einum er lagið að halda fram, þó allt sé í raun og veru á hraðri leið til glötunar.


mbl.is Bólusetning hafin innan Evrópusambandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband