Beinagrindur í skápi Miðflokksins.

Um þessar mundir virðast Sigmundur og félagar sópa að sér fylgi, sem að stærstum hluta er óánægju fylgi frá Framsókn og Sjálfstæðisflokki eins og skiljanlegt má teljast.

Miðflokkurinn uppsker nú fyrir að hafa nánast verið eina stjórnmála aflið sem reyndi að berjast gegn glæpsamlegri samþykkt þriðja orkupakkans og auglýsir nú í kjölfarið andstöðu við lymskuleg áform stjórnarliða um persónulegan ávinning varðandi vafninga Bjarna á borð við svo kallaðan Þjóðarsjóð og grænu skuldabréfin hennar Katrínar, sem enginn virðist reyndar hafa áhuga á að ræða frekar um.

Einn helsti liðsmaður Sigmundar og líklega hans hægri hönd virðist vera fyrrverandi utanríkisráðherra þjóðarinnar sem hreinlega barði sér á brjóst á götuvígjum Kænugarðs í sviðsettri byltingu Bidens og félaga og átti mestan heiður af milljarða tapi Íslendinga á idiótísku viðskiptabanni okkar gegn Rússum.

Annar er sá verknaður sem þeir Sigmundur og Gunnar Bragi verða að gera fulla grein fyrir, áður en nokkur heiðarlegur maður getur treyst þeim, en það er að útskýra hversvegna þeir fullvissuðu landsmenn sína um að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu hefði verið dregin að fullu til baka, þegar að það liggur fyrir að sú staðhæfing var í besta falli lygi.


mbl.is Segir lýðræðið hætt að virka sem skyldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þetta er mergjaður pistill Jónatan.

Magnús Sigurðsson, 10.11.2019 kl. 09:28

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Þakka þér Magnús.

Það virðist því miður svo komið hér á Íslandi, að annar hver maður, sem á þess nokkurn kost að flýja ókristilegt ruglið, hrikalega spillinguna og ekki síst óþolandi öfga femínisman, lætur við hið fyrsta tækifæri verða af því.

Yfirstéttin hrúgar síðan ómenntuðum, þægum og mállausum lýð í skörðin

Jónatan Karlsson, 10.11.2019 kl. 11:03

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það virðist vera markmið valdhafa að skipta um þjóð í landinu.

Magnús Sigurðsson, 10.11.2019 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband