Örvænting Demókrata vex.

Það nálgast að vera tragikómískt að fylgjast með þessari síðustu tilraun Demókrata að koma höggi á ærslabelginn Donald Trump.

Það verður með degi hverjum ljósara að hann mun hljóta glæsilegt endurkjör, svo fremi að hann sækist eftir því og er það auðvitað ástæða þess að leiðtogalaus vinstri klíkan grípur nú til þess örþrifaráðs að kæra hann fyrir að hafa sýnt áhuga á að sýna fram á fjármálaglæpi eða að margra mati föðurlandssvik þeirra Biden´s feðga í Úkraínu, sem lengi hefur verið þekkt og að auki að honum sé skítsama um annað þar á bæ.

Hlægilegust eru þó undirlægja vinstra liðsins bæði hér og auðvitað hjá Evrópusambandinu og sannarlega tilhlökkunarefni að fylgjast með vandræðalegum viðbrögðunum þeirra varðandi kosningabaráttuna vestanhafs næstu misserin.


mbl.is Trump „skítsama“ um Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband