Hver hefur sinn djöful að draga...

Kári Stefánsson skrifar undarlega grein í fréttablaðið, þar sem hann kemur svokölluðum utanríkisráðherra og félögum til varnar, eftir ótrúlegt klúður þeirra varðandi óskiljanlegt skemmdarverkið á áralöngum blómstrandi viðskiptum okkar við vinaþjóð okkar Rússa.

Kári bullar um að stórfellt tap okkar sé í raun aðeins ódýrt rúllugjald fyrir að fá að standa upprétt í samfélagi þjóðanna og síðan dregur hann Halldór Laxness og rithátt hans inn í "mjálmið" og nefnir til sögunar frumvarp sem lagt hafði verið fram til að koma böndum á frjálslegan ritstíl Nóbelsskáldsins en í kjölfar þeirrar umræðu allrar orti Steinn Steinar ljóð sem hann kallaði Samræmt göngulag fornt.

Eftirfarandi tvær ljóðlínurnar úr þessari beittu ádeilu Steins eru sígildar, en hitta nú að mínu mati betur fyrir karla eins og Kára sjálfann og alla þá aðra er sjá ekki í gegnum augljóst samsærið í Kænugarði og fylgja auðmjúkir og bljúgir fyrirmælum herranna í Brussel og Washington.

Álútir skulu menn ganga og hoknir
í hnjánum
og horfa með stilling og festu á
íslenska jörð


mbl.is Ylli meira tjóni en nemur Rússagullinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband