Meðmælandi

Það er ánægjulegt að sjá þennan glæsilega frambjóðanda bætast í hópinn. Hún hefur vakið athygli fyrir skörulega framgöngu á vegum Hagsmunasamtaka Heimilanna og enginn getur borið brigður á einbeitta þjóðhollustu hennar. Það sem ég vildi þó fyrst og fremst með þessu bloggi, var að koma þeirri uppástungu á framfæri til Andreu og hinna frambjóðendana að almenningur á borð við mig sem vilja veita þeim nauðsynleg meðmæli til framboðsins, geti gengið að þeim vísum á föstum tímum á tilteknum stað, t.d í Kringlunni. Líkurnar á því að ég rekist á einhvern þessara ágætu frambjóðenda á förnum vegi eru nefnilega hverfandi, þó ég sé sannarlega reiðubúinn til að pára fangamark mitt á meðmælenda lista þeirra allra.
mbl.is Andrea tilkynnir um forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband