25.9.2022 | 16:07
Nískir Svisslendingar, eða ?
Getur það verið að auðugir Svisslendingar vilji frekar henda ónotuðu COVID19 bóluefni, fremur en að gefa það fátækum þjóðum?
Það skyldi þó aldrei vera að þessar bláfátæku þjóðir afþakki og telji að þær dafni betur án þessara COVID bólusetninga okkar?
![]() |
10 milljón Moderna skammtar í vaskinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2022 | 18:19
COVID 19 vangaveltur.
Það er sannarlega vonandi að rætnar efasemdir varðandi notkun og gagnsemi ítrekaðra sprautuherferða eigi ekki við hin minnstu rök að styðjast.
Það væri óbærilegt ef frábært heilbrigðisstarfsfólkið sem stóð í fararbroddi yrði síðar ákært og dæmt fyrir það eitt að fylgja fyrirmælum og bestu sannfæringu.
![]() |
Héldu málþing til heiðurs Þórólfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2022 | 21:18
Ítrekað dómsmorð og reginhneyksli.
Það blasir við að með þessum endurupptökudómi að enn er reynt að halda verndarhendi yfir hverjir það voru í raun og veru sem spunnu sögurnar sem Erla og hin ungmennin voru þvinguð til samþykkja.
Til að byrja með þarf að upplýsa þjóðina um hverjir kváðu upp þennan óréttláta úrskurð og krefjast annara og haldbærra raka frá þeim, heldur en að enginn ný gögn hafi borist, þó svo að Hæstiréttur Íslands hafi í millitíðinni úrskurðað um sakleysi sakborninganna.
Öruggt er að þjóðin öll mun hvetja Erlu til að áfrýja og leyta réttlætis útfyrir landsteinana.
Öll tiltæk skjöl málsins má nálgast hér: Mál 214 - mal214.com
![]() |
Endurupptökudómur hafnar beiðni Erlu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2022 | 10:13
Frábærar athugasemdir gegn áróðursskrifum fyrir Rússahatri.
Ég gerist hér svo djarfur að endurbirta tvær frábærar athugasemdir hér af síðunni, eina stutta og aðra nokkuð langa og svör blogghöfundar við þeirri fyrri. Ég vona að þessi framhleypni mín verði einungis til gagns og gamans fyrir viðkomandi og sem flesta aðra sem mögulega hafa farið á mis við herlegheitin.
Skrúfað fyrir allt af beggja hálfu.
Af hverju ættu Russar að afhenda gas af því bara það vantar, en fá ekkert sjálfir sem vantar. ?
Böðvar Guðmundsson, 6.9.2022 kl. 11:38
Bjarni Jónsson höfundur bloggfærslunar "Orkustríð Rússlands við önnur Evrópulönd" svarar:
I þessari athugasemd er siðferðisleg staða Rússlands og Evrópulandanna lögð að jöfnuu, en höfundurinn horfir alveg framhjá upptökum deilunnar og atburðarásinni. Það var sett viðskiptabann á Rússland í refsingarskyni fyrir að rjúfa friðinn í Evrópu með stórfelldri innrás í Úkraínu í því skyni að leggja hana undir sig. Það var gerð undantekning með eldsneytisgasið og það greitt með rúblum, eins og Rússar heimtuðu, en Rússar brutu jafnvel þennan eina viðskiptasamning. Þeir hafa nú komið til dyranna, eins og þeir eru klæddir og sýnt, að þeim er í engu treystandi. Þeir munu ekki ríða feitum hesti frá öllum þessum viðskiptum.
Bjarni Jónsson, 6.9.2022 kl. 17:30
Borgþór Jónsson skrifar nýja athugasemd:
Greiðsla fyir gas í rúblum var ekki viðskiftasamningur,það voru úrslitakostir Rússa.Það fylgdi því engin skuldbinding um að halda áfram að selja gas til Evrópu.Hér verður að hafa í huga að fyrir nokkrum árum þá sögðu ríki Evróððu upp öllum samningum við Rússland um kaup á gasi að Þýskalandi undanskildu ,að hluta.
Þessi sanmningur við Þjóðverja hefur alltaf verið virtur og er enn virtur.
Þjóðverja hafa fyrir löngu fengið allt gas sem Rússar voru skuldbundnir að selja þeim. Rússar hafa engar skuldbindingar umfram það. Undirliggjandi í þessum hroka er gamla nýlenduhugsunin. Þeir eru herraþjóð og aðrar þjóðir eiga að fórna eiginhagsmunum ef það kemur betur út fyrir ESB,eða elítuna í ESB öllu heldur Í hömlulausum hroka sínum finnst ESB að Rússar séu skuldbundnir að selja þeim gas þrátt fyrir að ESB hafi sjálft sagt upp flest öllum samningum þar um.
Rússar hafa ekkert brotið á Evrópubúum en ESB hefur á hinn bóginn brotið nánnast alla samninga við Rússa plús öll alþjóðalög og samninga sem fjalla um viðskifti. Þetta hefur meira að segja leitt til hreinna þjófnaða á eigum Rússneskra fyrirtækja,einstaklinga og Ríkisins.Þetta afnám laga og réttar kemur til með að hafa vondar afleiðingar til langs tíma. Þegar þjóðarleiðtogar grípa til svona gripdeilda á alþjóoðavettvangi þá er stutt í að þeir fari að beita sömu meðulum gagnvart eigin þegnum. Þetta er þegar hafið. Nú færist í vöxt að eigur fólks eru gerðar upptækar ef viðkomandi fylgir ekki línu stjórnvalda í einhverjum atriðum.
Vestræn samfélög eru að breytast í einhverskonar Sómalíu þar sem ofbeldi ríkisins gagnvart einstaklingum fer hratt vaxandi Menn kalla þetta viðskiftaþvinganir ,en þetta er í raun einungis brot á viðskiftaháttum og samningum.
Þjóðir heims fylgjast með þessu og niðurstaðan er og verður í vaxandi mæli að þjóðarleiðtogar heims eru að draga sínar þjóðir út úr viðskiftaumhverfi Vesturlanda og búa tíl nýtt. Þær gera sér grein fyrir því í vaxandi mæli að ef þær taka hagsmuni eigin þjóða fram yfir hagsmuni stjórnenda Vesturlanda verður þetta Vestræna viðskiftakerfi notað til að leggja viðkomandi þjóð í rúst.
Nato kom þessu stríði á af því að þeir vildu leggja Rússland í rúst og hirða auðlindir þeirra. Þetta er í raun beint framhald af þörf Hitlers fyrir Lebensraum og herferð Svíakonungs af því að hann vildi tryggja að hann gæri haft Rússland að féþúfu. - Það hefur ekkert breyst.
Hver árásin rekur aðra til að koma höndum yfir Rússagullið. Þessar árásir hafa alltaf mistekist og þessi kemur til með að gera það líka. Niðurstaðan í þetta skifti verður hinsvegar verri en oftast áður ,vegna breytinga sem hafa orðið í heimsþorpinu.
Það er alveg sama hvernig Úkrainustríðið eða viðskiftastríðið fer ,níðurstaðan er og verður áfram gífurlegur og langvarandi samdráttur í lífskjörum Evrópu. Til lengri tíma kemur Evrópa til að vera álíka mikilvæg fyrir heimslíkamann og rófubeinið er fyrir mannslíkamann.
Upphaf þessara átaka var að Úkrainustjórn drap 14.000 manns fyrir það eitt að þau vildu ekki láta Úkrainska ríkið eyða sér. Það var drepið af því að þau voru Rússnesumælandi og heiðruðu Rússneskar venjur og sögu. Þau sættu sig ekki við að vera svift tungumálinu ,sögunni og samskiftum sínum við ættingja sína í Rússlandi.
Úkrainustjórn ákvað að drepa bara fólkið ,allavega nógu marga til að fólkið léti sér segjast og lofaði stjórninni að eyða sér. Úkrainustjórn neitaði að viðra samninga sem hún hafði gert um að hætta þessu og leita sátta við fólkið á Donbass. Þvert á móti var ljóst að Selenski hafði gert ráðstafanir til að herða enn ofsóknirnar gegn fólkinu og hafði í því skini stóraukið stórskotaliðsárásir sínar á fólkið.
Þetta er upphafið að átökunum.
Það var enginn friður í Evrópu.
Það stóðu yfir stórfelld dráp á almenningi í hjarta Evrópu af ríkisstjórn sem hefur vægast sagt vafasamnar skírskotanir til aumasta lággróðurs 20. aldarinnar.
Borgþór Jónsson, 11.9.2022 kl. 01:15
Bæ
![]() |
Þýski herinn verði sá best búni í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.9.2022 | 11:50
Lýsandi dæmi um spillingu og ójöfnuðuð á Íslandi.
![]() |
Útvarp Saga hlaut ekki styrk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2022 | 07:13
Fátt að verða um fína drætti hjá Flokki fólksins!
Fyrirsögnina má alls ekki taka bókstaflega, heldur höfðar hún alfarið ýmist til fordæmingar afsagnar eða brottrekstrar lykilmanna þessa unga stjórnmálaflokks.
Mögulega á skorti af betra, þá hef ég oftar en einu sinni gefið flokknun og fyrirheitum hans atkvæði mitt, en er nú alvarlega farinn að óttast að afdrif flokksins verði þau hin sömu og sakamála sögunar sem gerast átti á eyðieyju, þar sem aðalpersónurnar týndu tölunni hver á fætur annari, uns enginn var eftir nema hundurinn og var þar með öllum frekari glæpasögu skrifum höfundar sjálfhætt.
![]() |
Barði í borðið og Málfríður fór grátandi út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.9.2022 | 12:43
Öll fjármál Íslands í kalda kolum.
Fjármál ríkis og bæjarfélaga þjóðarinnar eru vægast sagt á heljarþröm, eins og rekstur Reykjavíkur fyrri hluta ársins ber nú ljóslega með sér, þrátt fyrir að hér drjúpi smjör af hverju strái.
Blikkandi aðvörunarljós ríkissjóðs í þrúgandi þögn afskiptra ráðþrota yfirvalda og örvæntingarfullar vaxtahækkanir seðlabankastjóra sem virðist þó allar unnar fyrir gíg, nema auðvitað fyrir þann hluta þjóðarinnar sem ávaxtar pund sitt á eymd meirihlutans sem þrælar myrkrana á milli við hlið innflutts láglauna vinnuafls fyrir stöðugum verðhækkunum og nær þó varla eða alls ekki endum saman.
Þetta eru undarlegir tímar og almenning helst talin trú um að ástæður hækkunar leigunar og matarpokans séu vegna illmennsku Rússa og sennilega líka Kínverja og því ættum við að vera stolt af því að herða sultarólina og styðja hnarreist frelsisbáráttu fullvalda viðurkenndra ríkja og auðvitað líka baráttuna við loftlagsbreytingarnar af völdum manna og það helst demókrata.
Ekki má nú meirihluti okkar hyskisins heldur gleyma að láta bólusetja okkur eftir þörfum og auðvitað hætta að segja eða hugsa öll gömlu vondu forboðnu lýsingaorðin sem eðlilega kosta nú a.m.k. ærumissi eins og allir ættu að sjá og skilja.
Rúsínan í pylsuendanum hvað okkur Íslendinga varðar sérstaklega í öllu þessu bilaða samhengi er sú að ég óttast að sú tálsýn sem við flest höfum lagt traust okkar og ævisparnað í og er ég þar auðvitað að tala um heilagan ósnertanlegan marg-þúsund milljarða lífeyris-og björgunarsjóð láglaunafólksins í landinu, að þeir peningar séu löngu týndir og tröllum gefnir og einfaldlega notaðir í eitthvað allt annað.
![]() |
Reksturinn tekur dýfu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.8.2022 | 21:55
Skítapakk
![]() |
Alltaf hafi staðið til að bjóða Jóni Baldvin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.8.2022 | 07:13
Kuldinn
Líklega á málshátturinn sem segir eitthvað í þá átt að hér sé læknirinn Sveinn Rúnar kominn í geitarkofa að leita ullar, þegar hann gerir sér minnstu vonir um að Þórdís utanríkisráðherra sjái eitthvað athuganarvert við sprengjuárásir ísraelsku gyðingana á innikróað Palestínufólkið.
Það er nefnilega því miður þannig að sum ódæði er allt í því fína með og helst bannað að minnast á, líkt og fréttamaðurinn Julian Assange fær t.a.m. að finna fyrir þessi misserin og því miður tilheyra leiðtogar okkar litlu þjóðar hver um annan þveran með flissandi leiðtogann í fararbroddi, þessu klappliði vestrænnar menningar og samstöðu.
![]() |
Kallar eftir fordæmingu af hálfu Þórdísar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.8.2022 | 07:12
Always look on the bright side of life
Yfirstandandi skjálfta-og gosvirkni hlýtur að hafa ákveðnar skipulagsbreytingar í för með sér sem helstar mætti nefna þær augljósu, að ekki þarf að eyða fé og tíma í frekari rannsóknir á vitleysis áætlunum um flugvallarbyggingu í Hvassahrauni og í öðru lagi neyðast yfirvöld hreinlega að setja uppbyggingu flóttaleiða úr Reykjavík og nágreni í algjöran forgang.
Tvær framkvæmdir blasa við í því samhengi, en þær eru auðvitað Sundabraut og lenging A/V brautar Reykjavíkurflugvallar.
Til að líta á fleiri jákvæðar hliðar á þessari þörfu áminningu náttúruafla Íslands, þá hljóta umdeildar framkvæmdir á borð við Borgarlínu og umferðarstokka að bíða betri tíma.
![]() |
Fimm stiga skjálfti við Kleifarvatn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |