18.3.2023 | 10:58
Vanvitar við völd.
Ég fæ ekki orða bundist yfir þeirri frétt að meirihlutinn í Reykjavík hyggist enn hindra umferðarflæðið í borginni og nú síðast með því að leggja af aðra beygju akgreinina af Kleppsmýrarvegi til suðurs inn á Sæbrautina.
Það þekkja allir sem á annað borð nota þessi gatnamót (líkt og ég geri) að þessa ráðagerð mætti auðveldlega kalla vitfirringu, miðað við núverandi álag.
Í raun og veru þá blasir það við öllum heilvita ökumönnum á Reykjavíkursvæðinu, að með því að nota hugvit og tækni, þá mætti greiða stórlega fyrir eðlilegu umferðarflæði um borgina, sem auðvitað myndi hafa tuga milljarða sparnað í för með sér, sem ætla mætti að kæmi sér vel fyrir vanvitana sem halda um stjórntaumana í höfuðborginni, svo ekki sé minnst á minni mengun og aukin loftgæði.
Án þess að telja upp þau ótalmörgu minni og auðvitað stóru dæmin um aðfarirnar að jöfnu og þægilegu umferðarflæði borgarana, sem lagfæra mætti þó á skömmum tíma, þá hvet ég einungis Reykvíkinga til að sameinast um að koma þessari vanhæfu og nær örugglega spilltu borgarstjórn með alla fjármálaóreiðuna og borgarlínuvitleysuna út í hafsauga sem fyrst, áður en það verður um seinan.
![]() |
Umbætur gerðar á gatnamótum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.3.2023 | 10:55
Leikið með lýðinn.
Ísraelar eiga það sameiginlegt með Íslendingum, að stjórnvöld eru kjörin lýðræðislega af kosningabærum landsmönnum og svarar því öllum spurningum um raunverulegt innræti þjóðarinnar - eða hvað?
P.S.
Spurningin er öllu fremur hve mikið atkvæði kjörina fulltrúa okkar kosta, þegar til kastanna kemur?
![]() |
Fjöldi fólks mótmælir í Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.3.2023 | 16:09
Hvað ef Ísland hefði yfir eigin her að ráða?
Ímyndum okkur að Íslendingar hefðu haft nokkur hundruð manna þung-vopnaða herdeild yfir að ráða 10. maí 1940 og þá auðvitað undir stjórn Agnars Kofoed-Hansens lögreglustjóra, í stað þeirra fáu, en vel þjálfuðu lögregluþjóna sem hann hafði til umráða og sem stóðu aðgerðalausir hjá.
Nú getur hver og einn gert sér í hugarlund hvaða hörmulegu áhrif blóðug mótspyrna íslenskrar herdeildar hefði haft á farsæld þjóðarinnar næstu árin, eða jafnvel á gang styrjaldarinnar.
Afstaða almennings á Íslandi til stríðsaðila fyrir hernámið er enn nokkuð á huldu, en ljóst þykir hvar hjarta lögreglustjórans sló, þó aldrei kæmi það í veg fyrir störf hans í þágu íslensku þjóðarinnar á stríðsárunum.
Auðvitað eru allar vangaveltur um íslenskan her hreinasta rugl og þvæla, því allt annað en hlutleysi fyrir okkar litlu þjóð býður einungis upp á hættu á stórfelldum hörmungum, því að leggja allt undir á eina tölu eða aðila, líkt og svokallaðir ráðamenn okkar gera nú, er bæði heimskulegt og býður eðlilega þar að auki upp á rökréttar vangaveltur um spillingu og landráð.
Heimsveldi koma og fara, eins og sagan sýnir okkur öllum og blasir það nú hreinlega við í ljósi fjölmargra vísbendinga, að tími Bandaríkjana og leppa þeirra er að líða undir lok og einungis hægt að vona og biðja að þau horfist í augu við það án þess að tortíma öllu lífi hér á jörðu.
Ef smáríki á borð við Ísland velur á annað borð að binda trúss sitt við ljómandi stórveldi fremur en að sitja hjá, þá væri eflaust t.a.m. giftusamlegra að beina athygli okkar og auðsveipni allri í áttina til vina okkar í Kína.
![]() |
Viðbúnaður varðar þjóðaröryggi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.2.2023 | 21:34
Fagra veröld
Það er óneitnlega kaldhæðnislegt að heyra stríðsáróður yfirvalda þessa dagana, með Katrínu forsætisráðherra í broddi fylkingar ríkisstjórnar og þægra þingmanna, auk yfirlýsingar þeirrar sem fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherrann eins og hann er titlaður, hefur hér fram að færa.
Í fréttum dagsins var haft eftir Antonio Guterres að sextíu aðildarþjóðir SÞ hefðu samþykkt í tilefni dagsins að fordæma innrás Rússa í Úkraínu fyrir réttu ári síðan, en hvergi minnst á að sá fjöldi nær þó ekki þriðjungi þeirra 193 þjóða sem skipa SÞ og tel ég harla litlar líkur á að gleymst hafi, eða ekki hafi verið leitað stuðnings allra þeirra þjóða sem augljóslega höfnuðu að taka þátt í fordæmingunni.
Það er þó enn ömurlegara að allt þetta góða fólk sem ber stríðsbumburnar með Kötu, lætur neyðarópin frá Palestínu sem vind um eyru þjóta, rétt eins og ekkert sé.
![]() |
Vill reka sendiherra Rússa úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.2.2023 | 08:57
Tveir plús tveir.
Hlutfall bólusettra á Íslandi er líka það hæsta - ekki satt?
![]() |
Umframdauðsföll hvergi fleiri en á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.2.2023 | 15:50
Totalen Krieg - Mun sagan endurtaka sig?
18. febrúar 1943 - Á þessum degi fyrir nákvæmlega áttatíu árum öskraði Joseph Goebbels áróðursráðherra Hitlers þessi sömu orð, sem áróðursráðherra NATO hyggst kyrja fyrir bandalagsþjóðir NATO á svokallaðri öryggisráðstefnu í Munchen í dag, eins og okkur gefst væntanlega færi á að heyra í kvöldfréttum og sjá betur hér á síðum mbl.is á morgun.
Það er blátt áfram óhuggnanlegt í ljósi stöðu mála í Úkraínu og örvæntingar þeirrar sem greina má augljóslega hjá handbendinu Selenski og hvatningum félaga hans handan Atlantsála, að nú gætu ragnarök í Evrópu nálgast hratt.
Það er einungis hægt að vona að heróp og öll fyrri áhrínsorð Norðmannsins Jens Stoltenbergs hafi ekki tilgangslausar fórnir og hörmungar í för með sér fyrir okkur bandamenn hans í Evrópu, líkt og eftirminnileg hvatningaræða Göbbels kollega hans á Berlin Sportpalast hafði fyrir Þjóðverja og alla heittrúaða bandamenn þeirra.
![]() |
Óttast að Rússar fái sömu meðferð og Kína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2023 | 15:52
Falsfrétt ehf.
Fréttin sem hér er birt, virðist eiga rætur að þessu sinni í Breska varnarmálaráðuneytinu, sem í augum margra gerir hana trúverðugri, en er vafalaust ekkert annað en uppspuni og reyndar ekki ósvipaður þrumuræðum Jóseps Göbbels fyrir sléttum áttatíu árum í Berlín, eins og frægt er orðið, einmitt eftir að stríðslán Þjóðverja snerist við Stalíngrad.
Það sem kætir í mér kvikindið varðandi fréttaflutning mbl.is er auðvitað sú augljósa staðreynd að leiðarljós og átrúnaðargoð miðilsins gæti líklega haft nokkra hugmynd um mannfallið hjá Úkraínumönnum, en alls enga hvað Rússa varðar, sem sannar því augljósan uppspunann.
Þó í þessu tilviki sé létt að sjá í gegnum lygar yfirvalda okkar, þá er það ömurlega kaldhæðnislegt að nú á tímum tækni og framfara í vísindum séum við einungis auðveldari bráð falsfrétta en nokkurn tíma áður - að því virðist.
![]() |
Yfir 800 rússneskir hermenn deyja á dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2023 | 18:03
Áhugaverð og ögrandi sjónarmið varðandi COVID og útlendingafrumvarp.
Í eftirfarandi færslu sem ég álít að eigi meiri hljómgrunn en látið er í veðri vaka, birti ég hér ágrip af skoðunum tveggja Íslendinga, sem hafa hugrekki til að ganga í berhögg við ríkjandi skoðun - eða skoðanakúgun? Ef færslan vekur spurningar eða hrærir tilfinningar lesanda, þá hvet ég viðkomandi til að nálgast greinarnar í fullum skrúða á viðkomandi fjölmiðlum.
Grein 1. COVID
Ekki fleiri sprautur, Segir Guðmundur Karl læknir. Fólk sem hefur verið hvatt til þess að fara í fjórðu og fimmtu sprautuna vegna faraldursins ætti alls ekki að fara í þær sprautur. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðmundar Karls Snæbjörnssonar sérfræðings í heimilislækningum í síðdegisútvarpi Útvarps Sögu í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur. Guðmundur segir sprauturnar valda meiri skaða heldur en sjúkdómurinn sem fólki hafi verið talið trú um að þær ættu að lækna.
Sprauturnar valdi til dæmis skaða á ónæmiskerfinu og bendir á að þeir sem hafi farið í sprautur séu þeir sem hafi fyrst og fremst hafi verið að veikjast illa og jafnvel deyja, það gefa tölur um umframdauðsföll að minnsta kosti til kynna. Hann segir að hann sé farinn að kalla sprauturnar dauðastautinn og bendir á að með hverri sprautinni sé verið að veikla ónæmiskerfið meira og meira og það sé engin vernd falin í efnunum, sem reyndar enn hafi ekki verið upplýst um innihaldið í.
Guðmundur ítrekar mikilvægi þess að fólk átti sig á að sprauturnar verndi engan og hindri ekki heldur smit. Því ætti fólk að spyrja sig hvers vegna það ætti að fara í sprautu sem ekki verndar það gegn því sem sprautan er sögð vernda þig gegn. Auk þess séu þær aukaverkanir sem fylgi sprautunum gígantískar. Guðmundur bendir á að engir vísindamernn hafi getað sýnt fram á að sprauturnar verndi og þá hafi yfirmenn Pfizer sagt sprauturnar ekki veita vernd og hví ætti fólk að fara í sprautur sem ekki virka.
Grein2. Útlendingafrumvarp.
Alþingismennirnir Arndís Anna og Þórhildur Sunna frá Pírötum, Helga Vala Helgadóttir og Logi Einarsson Samfylkingu, sem og Sigmar Guðmundsson Viðreisn, svo einhverjir séu nefndir, berjast af offorsi gegn hælisleitendafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra og fyrir aukinni móttöku hælisleitenda með alþjóðlega vernd þeim til handa.
Ég hef sjaldan eða aldrei heyrt áðurnefnda þingmenn tala fyrir útrýmingu fátæktar hér á landi. Ekki heyrt þá tala fyrir bættum kjörum öryrkja, einstæðra mæðra og ellilífeyrisþega. Hvað þá langveikum börnum og foreldrum þeirra. Aldrei heyrt þá tala um fjölgun hjúkrunarrýma. Nei, þeir eru of uppteknir við að setja íslenskt velferðarkerfi á hliðina.
Svona hefst grein eftir Lárus Guðmundsson, markaðsstjóra og áhugamann um íslenskt samfélag, í Morgunblaðinu í dag. Margir muna kannski eftir Lárusi sem atvinnumanni í knattspyrnu í Belgíu og Þýskalandi á árum áður. Í greininni, sem ber fyrirsögnina Alþingi Íslands logar, málþóf um útlendingafrumvarp segir Lárus að sumir af fyrrnefndum þingmönnum hafi á síðustu árum haft lifibrauð sitt af fjölgun hælisleitenda og málsvörnum tengdum málaflokknum. Hann bendir á að Arndís Anna K. Gunnarsdóttir hafi starfað sem lögfræðingur hjá Rauða krossinum fram til ársins 2020. Helga Vala Helgadóttir sé eigandi lögfræðistofunnar Valva lögmenn. Í verkefnalýsingu stofunnar komi fram að hún taki að sér að gæta réttinda erlendra borgara.Eru þessir þingmenn hæfir til að fjalla um málefni flóttamanna á Alþingi Íslendinga á hlutlausan hátt? Svar mitt er einfaldlega nei segir Lárus.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.2.2023 kl. 06:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.2.2023 | 10:49
Freak show með kynferðislegum undirtón.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, þá öskra áheyrendur af hlátri og undrun þegar bústin konan kveikir í berum brjóstunum. Svona skemmtiatriði með kynferðislegum undirtón hafa lengi verið vinsæl hjá ákveðnum hópum, líkt og t.a.m. þegar dýr og manneskjur hafa opinberlega mök.
Einmitt þessi myndskreytta frétt sýnir ágætlega tvískinnungin í almenningsáliti og öllum fréttaflutningi nútímans, líkt og "bluraðar" geirvörtur og auðvitað opinber dómsmál og óopinberar aftökur fyrir jafnvel atlot og bakstrokur bera vott um, á meðan svona sýningar og afbrigðilegheit eins og það var til skamms tíma kallað, þykir hugrakt og fínt.
Eins og segir í laginu góða:
Það sem Bubba þykir gott og gilt, þykir Hauki frænda nokkuð villt.
![]() |
Bar eld að eigin brjóstum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2023 | 15:20
Ár kanínunar 2023
![]() |
Tíu manns látnir eftir skotárásina í Los Angeles |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |