4.11.2023 | 11:20
Ásýnd hins illa?
Ég verð að viðurkenna að þegar ég myndir af þessum leiðtoga Ísraelsmanna, þá fer hrollur um mig, en það er vonandi einungis mín tilfinning.
Þessi frétt snýst um að engin breyting verði á hrikalegum árásum gyðinga á íbúa Gaza fyrr en ísraelsku gíslunum verði sleppt, en það er ekki nefnt að Palestínumenn hafa frá upphafi sagst sleppa gíslunum tafarlaust ef þær þúsundir Palestínumanna sem haldið er án dóms og laga í alræmdum dyflissum Ísraelsmanna yrði sleppt á móti.
Það er ömulegt og reyndar sorglegt að verða vitni að sönnu innræti kjörinna leiðtoga okkar sem sýnir svo ekki verður um villst hvern mann þau hafa að geyma.
![]() |
Ekkert vopnahlé án þess að gíslar verði látnir lausir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2023 | 07:06
Katrín segir eitt en framkvæmir annað.
![]() |
Vill tafarlaust vopnahlé á Gasa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2023 | 10:26
Þögn Íslendinga er sama og samþykki.
Er það ekki eitt helsta einkenni sögu gyðingaþjóðarinnar að afla sér andúðar, fyrirlitningar og jafnvel haturs nágranna og samtímamanna sinna eins langt og rekja má sögu þeirra?
Það fer ekki á milli mála að innan þessa ofsótta þjóðflokks finnast margir af helstu hugsuðum og snillingum mannskepnunar líkt og staðreyndir á borð við fjölda Nóbelsverðlauna bera vott um og engir eru heldur eins fyndnir og skemmtilegir þegar svo ber undir.
Hverjar eru þá ástæður þess að þessi stórbrotni þjóðflokkur hefur áunnið sér þvílíkt hatur og andúð að hann hefur ítrekað verið ofsóttur og gerður brottrækur frá heimkynum sínum eins langt og sagan segir, en virðist nú enn og aftur á góðri leið með að ögra og vekja andúð samtímamanna sinna líkt og þessar fullyrðingar Erdogans Tyrklandsforseta bera ljóslega með sér aðeins áttatíu árum eftir að hafa verið ofsóttir og hraktir frá heimkynnum sínum í Evrópu í hinni alræmdu helför, sem leiddi til stofnunar ríkis friðar og öryggis hinnar ofsóttu þjóðar í hinu forna Ísrael, fyrir aðkomu Sameinuðu Þjóðanna?
![]() |
Hvetur Ísrael til að stöðva þetta brjálæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2023 | 11:00
Alsherjarþing SÞ. samþykkti fordæmingu, en Ísland sat enn og aftur hjá.
Stundum skammast ég mín fyrir að vera Íslendingur og það á sannarlega við þegar kemur að stuðningi okkar okkar við grimdarlegt áratuga hernám, landstuld og þjóðarmorð gyðinga á Palestínumönnum, sérstaklega varnarlausum konum þeirra og börnum.
Lítið betra er takmarkalaus stuðningur okkar við hagsmuna drifinn stríðsrekstur NATO og Bandaríkjamanna út um allar jarðir og skammarlegt samþykki okkar við þöggun þeirra sem benda á sannleikann, menn eins og t.d. Julian Assange sem íslenskir fjölmiðla menn og konur fjalla helst ekki um - eins og við blasir.
Að endingu vil ég minnast þess að mæður, dætur og systur þessar þjóðar sem þykir fremst hér á jörðu hvað kvenréttindi varðar hrópa af öllum lífs og sálar kröftum út yfir heimsbyggðina ályktun fjölmenns kvennafundar, sem ekki var þó beinlínis neitt friðar ákall, heldur bara að mínu mati ósmekkleg kveðja til allra þeirra lífs og liðinna karla sem studdu þær til dáða - Njótið vel stelpur:
FUCK FEÐRAVELDI - FUCK FEÐRAVELDI
![]() |
Dapurlegt að Ísland greiði ekki atkvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.9.2023 | 11:09
Slagorð tuttugasta áratugs tuttugustu og fyrstu aldarinnar
Ritað í tilefni ítrekunar og áherslu svokallaðrar Forsætisráðherra og fylgjenda hennar á bráðanauðsyn þess að hefja tafarlaust rekstur Sannleiksráðuneytis vegna vaxandi óþægðar og ókyrrðar sauðsvarts almúgans gegn fagnaðarboðskaps hinnar heilögu endurræsingar.
Nú á síðustu vikum og mánuðum ber í sívaxandi mæli meira á merkjum um efasemdir í garð síbylju frétta þeirra sem ríkisfjölmiðlar básúna látlaust yfir okkur "upplýsta" vesturlandabúa, hvort heldur sem það snýst um nauðsynlegar bólusetningar, opin landamæri, ný eða breytt kyn, eða bara staðfast hatur á fíflinu Trump og morðingjanum Pútín.
Ég vil af því tilefni nota síðustu málsgrein bloggarans Geirs Ágústssonar frá 28. Sept s.l. þar sem hann fjallar um þessi mál og einfaldlega kalla þessa eftirfarandi aðvörun hans slagorð alls þessa umrædda tímabils:
"Ekki vera bjáninn sem vaknar ekki fyrr en sögutíminn var búinn og situr eftir með baneitraðar sprautur í viðkvæmum líffærum, geldur, með tómt veski og strætókort í stað bíllykla í vasanum"
![]() |
Vitundarvakning þolir enga bið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2023 | 11:23
Hefur Gylfi virkilega geð í sér til að spila þegar KSÍ þóknast það?
Íslenska karlalandsliðinu og hreinlega allri stjórn knattspyrnumála okkar litla lands, reyndar með einni undantekningu var eftirminnilega kippt niður úr ótrúlegu velgegnis-tímabili strákana okkar eins og við kölluðum þá, niður á helkalda jörðina og það svo óþyrmilega að nokkrir þessara sömu stráka, líkt og á við Gylfa, munu ekki ganga óhaltir frá fyrirsátinni og landskiðið sjálft nær sér líklega því miður aldrei aftur á strik.
Ruglið, ritskoðunin og rétthugsunin mun eflaust malla möglunarlaust áfram og niðurnjörvuðum kvöldfréttatíma Ríkis-fjölmiðilsins verður ætíð sleppt eða hnikrað ef þykja þurfir að kenna megi árans feðraveldinu lexíu, t.a.m. með að njóta í beinni útsendingu að fylgjast með landsleik íslensku stelpnana með tómum bekkjum Laugardalsvallar, þrátt fyrir ókeypis aðganginn, fremur en að fylgjast með einskisverðum fréttum úr raunheimum annara illa innrætra karlpunga.
![]() |
Beint í landsliðið með Gylfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.9.2023 | 07:18
Áfram Ísland.
Vonandi tekst íslensku strákunum að hrista af sér álögin og vinna eða í það minnsta halda jöfnu gegn liði Bosníu í kvöld.
Það er líklega fremur sálarástand þessara leikmanna sem þarfnast lækningar eftir þær hremmingar, ákærur eða róg sem lögðu af af velli marga helstu máttarstólpa okkar ótrúlega knattspyrnu landsliðs.
Það hvílir mikið á herðum landsliðsins eftir gjörningaveðrið, en vonandi næst að snúa þessari þróun í kvöld og leggja allt þetta bilaða tímabil að baki, sem kalla mætti tíma Me Too liðsins.
![]() |
Kári Árnason er ekki lengur hér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2023 | 17:17
Laxa rasismi - eða hvað?
Það hreyfir óneytanlega við manni og kveikir ákveðna samsvörun við kynþáttahyggju þá sem viðgengst títt hér í mannheimum, þegar fjallað er um ræfils eldis-laxinnn, sem veiddist í Smiðshyl í Vatnsdalsá í gær og möguleikan á óæskilegri blöndun strokufangans við hinn göfuga íslenska laxastofn.
Það þykir hreinlega jaðra við villimennsku að bjóða þessari hættu hingað í ómengaða paradís efnaðra laxveiðimanna og eiga það á hættu að rifinn og tættur flótta-eldislax eða jafnvel ógeðfelt afkvæmi hans bíti á verðmætan öngulinn.
![]() |
Verður að stöðva þessa villimennsku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2023 | 11:24
Ósjálfstæðisflokkurinn hf.
Ádrepa varaþingmannsins Arnars Þórs í síðustu færslu hans frá 26/8 um "sjálfstæði" Sjálfstæðisflokksins varðandi innræti Björns Bjarnasonar á sannarlega fullan rétt á sér þrátt fyrir glæst faðerni Björns og frama innan hans fyrrum ágæta flokks, þó eftir standi að langræknir minnist enn starfa hans innan veggja bandaríska sendiráðsins á Laufásvegi og sem enn virðist bíspertur ganga erinda erlendra afla, sem sannarlega snúast ekki um gæfu og gjörvileika íslensku þjóðarinnar, fremur en öll framkoma og gjörðir núverandi utanríkisráðherra, að því virðist.
Ég álít að sem betur fer, að vegna hreinskilni séu dagar Arnars Þórs séu taldir á vetvangi þessa sorglegu flokks ómyndar Þórdísar Kolbrúnar og lúpulegra félaga hennar sem öllu fremur ætti reyndar að heita eitthvað allt annað en Sjálfstæðisflokkurinn.
![]() |
Beint: Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2023 | 11:06
Öskjuhlíðinni bjargað.
Í sjónvarpsfréttum RÚV föstudaginn 18. ágúst, var fjallað um þá kröfu Ísavía að stóran hluta trjágróðurs Öskjuhlíðar yrði að ryðja af eðlilegum öryggisástæðum vegna sífellt brattara að-og fráflugs loftfara á A/V braut sökum hæðar trjánna.
Rætt var við Aðalstein Sigurgeirsson, varaformann Skóræktarfélags Reykjavíkur, sem í mestu friðsemd ítrekaði þá ágætu hugmynd, sem m.a. undirritaður og fleiri flugvallarvinir hafa margsinnis bent á, að einfaldlega mætti lengja flugbrautina sem um ræðir í vesturátt út í Skerjafjörðinn og þar með væri vandamálið vegna gróðursældar Öskjuhlíðar og Fossvogskirkjugarðs endanlega úr sögunni.
Að því sögðu, þá yrði Suðurgatan auðvitað í stokk undir flugbrautinni og þar að auki mætti auðvitað nýta svæðið sem skapaðist norðan lengingarinnar undir annan að svo komnu máli ótilgreindan en nauðsynlegan flugrekstur.
![]() |
Styðja kröfu um bætt flugöryggi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |