Er andspyrna göfug eða hryðjuverk?

Það er gömul saga og ný, að mótspyrna gegn ríkjandi yfirvöldum er kölluð hryðjuverka starfsemi og þeir sem taka þátt í þeirri starfsemi kallast hryðjuverkamenn.

Það ætti í raun og veru ekki að vera nauðsynlegt að telja upp dæmi um sambærileg samtök á borð við Hamas, sem eru frelsissamtök hernumdra og undirokraðra Palestínumanna og mætti þá eðlilega fyrst nefna hópinn sem sprengdi King David hótelið í Jerusalem með miklu mannfalli að mig minnir árið 1946 en þá var einmitt foringi hryðjuverkahópsins, maður að nafni Menachim Begin, sem síðar varð forsætisráðherra Ísrael, auk þess að taka fleirri þekkta og eftirlýsta hryðjuverkafélaga sína með sér til æðstu metorða í stjórn nýja landsins þeirra.

Andspyrnuhópur gyðinga í gettóinu í Varsjá voru kallaðir hryðjuverkamenn eða terroristar af þýskum yfirvöldum í síðari heimstyrjöldinni og sama máli gengdi þá um andspyrnuhópa í öðrum hernumdum löndum Þjóðverja og hver man ekki eftir baráttu Viet-cong skæruliða og Castro á Kúbu - allt svokallaðir hryðjuverkamenn.

Hvergi í þessari upptalningu minni hafa viðurlög hernámsvalda þó komist í hálfkvisti við hinar síðustu ólýsanlega skelfilegu hemdaraðgerðir Ísraelsmanna gegn því sem næst varnarlausum íbúum Palestínu.

Að mínu mati er einungis um tvær leiðir að ræða, en sú betri væri að Friðargæslulið SÞ væri sent í stórum stíl til landsins og sæi um að framfylgja tveggja ríkja aðskilnaðinum, sem marg oft hefur verið rætt og samið um, eða í verra fallinu að veita Palestínumönnum þá aðstoð sem þeir þurfa, svo þeir geti barist við hernámslið og landtökumenn Gyðinga á jöfnum fæti.


mbl.is Yfirgnæfandi meirihluti kaus með vopnahléi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir óþokkar.

Bjarni Benediktsson, Utanríkisráðherra Íslands, opinberar innræti sitt með ágætlega með þessari ótrúlegu fullyrðingu sinni um að sögulega hafi Ísland ekki slitið stjórnmálasambandi við aðrar þjóðir aðrar en Breta tímabundið, þrátt fyrir nýorðin óskiljanleg stjórnmálaslitin við vinaþjóð okkar Rússa, sem oftar en einu sinni hafa reynst okkur betri en þessir svokölluðu bandamenn okkar, sem greinilega hafa mörg okkar eða þá a.m.k. karla á borð við Bjarna Ben í vasanum og það í orðsins ýtrustu merkingu.

Ríkisstjórn okkar öll, svo ekki sé minnst á biskups-kvensuna ættu að skammast sín svo rækilega fyrir meðreiðina og linkuskapinn, að þeim verði ekki svefnsamt yfir hátíðarnar, frekar en öllum þeim sem geta ekkert aðhafst til hjálpar fólkinu og börnunum á Gaza.

Ég reyni að láta þetta verða minn síðasta dóm í bili yfir íslenskum óþokkum, ef ég mögulega get setið á mér.
mbl.is Slæm hugmynd að slíta stjórnmálasambandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkin eru óumdeilanlega mesta hryðjuverkaríki jarðar.

Enn og aftur sýna Bandaríkin innræti sitt, reyndar líkt og ætíð þegar þjóðir heims fordæma og reyna að koma í veg fyrir landrán og þjóðarmorð Ísraelsmanna á svo til varnarlausum Palestínumönnum.

Þessar tvær þjóðir eiga það sameiginlegt að álíta að þær séu guðs útvöldu þrátt fyrir að margt bendi til að þær séu einmitt erindrekar hins illa mér á jörðu - eins og óteljandi dæmi bera vott um.

Aumkunarverðastir eru þó þeir einstaklingar sem styðja í orði og borði græðgi og illvirki óþokkana sem nú opinberast í öllu sínu veldi í hörmungunum á Gaza og telja jafnvel til að bæta gráu ofan á svart, sjálfa sig ganga á vegum einhverra góðra afla.


mbl.is Bandaríkjamenn beittu neitunarvaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákæra fyrir meðvirkni að stríðsglæpum.

Lögum samkvæmt ber hverjum að koma slösuðum til aðstoðar og ennfremur segir að hver sá sem stendur mann að broti sem sætt getur ákæru og varðað getur fangelsi hefur heimild til að handtaka hann.

Varðandi hræðilega og nær dagleg þjóðarmorðin á Gaza, þá vil ég sem óbreyttur borgari ákæra Forseta Íslands, ríkisstjórn og alla embætismenn þjóðarinnar að meðtöldum biskupi og prestum landsins fyrir að brjóta þessi skýru lög með svívirðilegu aðgerðaleysi sínu.
Þó ekki væri nema eitt barn sprengt til dauða í Ísrael með dyggri aðstoð Bandaríkjamanna og rökkum þeirra að okkur meðtöldum, þá bæri að grípa í taumana, en þetta þjóðarmorð, sem virðist slá út Stalingrad, Dresden og Hirósíma hvað grimmd og eyðileggingu snertir og það í beinni útsendingu sjónvarpsstöðva hreifir ekki við öllum þessum valdhöfum okkar, sem bara láta þetta sem vind um eyru þjóta - helvítis kvikindin


mbl.is Þjáningar fólks óbærilegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varðandi ósanngirni í garð bókmenntahátíðarinnar, Iceland Noir.

Það er dæmigert fyrir örugga rauntilveru sakamálarithöfundarins Yrsu Sigurðardóttur að hún eigi erfitt með að skilja að Hillary Clinton, sem hún álítur kollega sinn, en sem er þó alræmd fyrir flest annað og m.a. stuðning hennar við svívirðilegt landrán gyðinga í Palestínu og augljóst þjóðarmorð íbúanna sem fyrir eru og það jafnvel í beinni útsendingu með velþóknun margra hér, líkt og t.a.m. stjórnvalda okkar - eins ömurlegt og það nú er.

Hillary þessi kom öllum rækilega á óvart, þegar hún tapaði í forsetakosningunum 2016 fyrir Donaldi Trump og hefur þeirri líklegu tilgátu verið varpað fram, að í aðdraganda kosningana sást hún í beinni útsendingu CNN hreinlega garga af ánægju, þegar sjónvarpsstöðin sýndi í beinni útsendingu þegar misþyrmt lík Gaddafis Lýbíuforseta var dregið á eftir pallbíl svonefndra uppreisnarmanna, en einmitt þetta óhuggulega látbragð og gleðihróp hennar gengu líkast til fram af velsæmi fjölda væntanlegra kjósenda hennar.

Hvað viðhorf útgefenda og yfirvalda til bókmennta snertir, þá má til gamans geta þess að verk hins geysivinsæla danska stríðssagnahöfundar Svens Hassel, sem fjalla aðalega um svaðilfarir þýskrar refsiherdeildar á austur vígstöðvunum í síðari heimstyrjöldinni, fást ekki útgefin í Danmörku og eru ekki einu sinni í boði á dönskum bókasöfnum og í því samhengi væri líka auðvelt að gera sér í hugarlund viðbrögð gyðinga samfélagsins ef til stæði að gefa út heildar ljóðasafn læknisins, Jóseps Mengele.

Og loks til frekari útskýringar fyrir íslensku glæpasagna drottninguna hvað þjóðarmorðið á Gaza snertir og viðbröggð þeirra sem slepptu þátttöku í gleðinni, þá er það lýsandi fyrir afstöðu Íslands, að í stað þess að fordæma og slíta stjórnmálasambandinu við Ísrael, þá er þeim boðið að spila knattspyrnuleik í Evrópukeppni félagsliða hér á landi, þó flestum ætti þó að vera ljóst að Ísrael er alls ekki Evrópuþjóð og þar fyrir utan býsna auðvelt að reikna út hlutfalls líkurnar á því hve stór hluti þessara ungu kappa, sem auðvitað eru líka hermenn hafi hreinlega blóð varnarlausra Palestínubúa á höndunum.


mbl.is Alveg fáránlega ósanngjarnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um kurteisi eða þagmælsku Morgunblaðsins?

Morgunblaðið er víðlesinn miðill og á margan hátt ágætt, þó það fylgi tíðarandanum nokkuð blint og reyni því að fara leynt með innrætið og þá helst á þann veg, að allt það sem ekki samræmist skoðunum eða hagsmunum blaðsins neyði lesandann einfaldlega að lesa á milli línanna, ef þá á annað borð er hægt að nálgast vefmiðlinn t.a.m. erlendis, sem auðvitað gildir þó ekki um hin óvinveittu og illu veldi Kína og Rúsland, en að sögn yfirmanns netöryggisdeildar mbl.is, er lokað fyrir birtingu miðilsins þar og samskipti af ótta við gagnkvæmar netárásir sem búast mætti við úr þeirri átt - svo ótrúlegt sem það nú hljómar.

Nokkur dæmi um málefni sem fara frekar leynt í Hádegismóum er t.d. uppsagnir og fordæmingar handboltafrömuða vegna styrktarsamnings Arnarlax við HSÍ og lítið er sömuleiðis fjallað um ástæður hörmulegs gengis hinnar höfuðíþróttarinnar, þ.e.a.s knattspyrnunar og þöguls samþykkis brottrekstrar, fordæmingar og útskúfunar helstu burðarstólpa karlalandsliðsins vegna misloðinna ávirðinga og mistrúverðugra heimilda, eins og frægt er orðið.

Varla er því síður tiplað á fjarlægum möguleika landsliðsins að komast á Evrópumótið, sem felst víst í að sigra illskeytt lið Ísraels sem samanstendur af harðsnúnum þrautþjálfuðum hermönnum og þar að auki ekki Evrópubúum eftir því sem best er vitað og aftur án nokkura spurningamerkja.

Annað er það mál sem fer nærri jafn dult og afstaða blaðamanna Morgunblaðsins varðandi örlög kollega þeirra, hans Julians Assange, en það er nýjasta kynlífs hneykslið, en það er auðvitað sú staðreynd sem loksins er kominn í ljós að séra Friðrik var auðvitað einungis að leita að litlum drengjum til að misnota, þegar hann þóttist vera að berjast fyrir góðum málefnum sem gerðu að þjóðin elskaði hann og dáði þangað til allt í einu núna á síðustu dögum, en nú skal helst mölva styttuna af honum eða henda í höfnina líkt og er tíðkast um þessar mundir, en þó að lokum eins og ég álít nú helst um allar þessar biluðu fordæmingar og sögufalsanir, þá held ég nú persónulega að meinið liggi oftast fremur í hugum og hjörtum siðgæðispostulana sjálfra, heldur en hjá óteljandi fórnarlömbunum þeirra.


Albert Guðmundsson ekki nothæfur.

Það væri synd að segja að íslenska karla landsliðið í knattspyrnu blómstri þessi árin með nýrri forystu og áherslum. Reyndar má mögulega segja að við séum nú á rökréttum stað með jafningjum okkar á smáþjóðaleikjum næstu ára.

Það er auðvitað vonandi að líf leynist enn í Gylfa Sigurðssyni, okkar skærustu stjörnu þrátt fyrir áralanga óréttmæta aðförina, en hörmulega ógæfulegt að helsta vonarstjarna okkar, Albert Guðmundsson sé að hljóta þau sömu örlög, þrátt fyrir að báðir haldi fram sakleysi og engin ástæða til að ætla annað.

Vonandi tekst okkar litla landi að halda haus gegn stórliði Portúgals í kvöld, þrátt fyrir illan ásetning ónefndra.


mbl.is Aron Einar ekki í hópnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin sanna ásjóna Hillary Rodham Clinton.

Án þess að reyna að útskýra kenndir þeirra landa minna sem aðhyllast og afsaka hörmulega aðskilnaðarstefnu þá sem gyðingar stunda nú fyrir opnum tjöldum, þá tek ég ofan hatt minn fyrir þeim rithöfundum sem höfðu manndóm og þor til að sniðganga bókmenntahátíðina Iceland Noir og skrifuðu undir eftirfarandi yfirlýsingu:

"Hillary Cl­int­on beit­ir sér op­in­ber­lega gegn því að vopna­hlé verði gert á yf­ir­stand­andi þjóðarmorði Ísra­els­hers í Palestínu. Einnig hef­ur hún um ára­bil notað sinn breiða vett­vang til þess að dreifa áróðri Ísra­els­stjórn­ar og röng­um upp­lýs­ing­um með til­heyr­andi skaða fyr­ir palestínsku þjóðina,” seg­ir í opnu bréfi sem höf­und­arn­ir skrifa und­ir.

"Með því að bjóða henni tók Ice­land Noir-hátíðin af­stöðu og með því að halda boðinu til streitu und­ir­strikaði hátíðin póli­tíska af­stöðu sína, með stríðsglæp­um og þjóðarmorði,” seg­ir þar einnig.

Persónulega er ég að lokum sannfærður um að helsta ástæða þess að Hillary kom öllum á óvart og tapaði með minnsta mun fyrir Donald Trump í forsetakosningunum 2016 var sú að fjölmargir heiðvirðir Demókratar misstu hreinlega lystina til að kjósa hana, eftir að hafa séð fréttaskot af henni skrækja af gleði þegar hún fylgdist með beinni útsendingu CNN sýna limlest lík Gaddafi dregið á eftir pallbíl uppreisnarmanna í Lýbíu.


mbl.is Tugir höfunda sniðganga Iceland Noir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru bláu hjálmarnir núna?

Íslendingar ættu að sýna þann manndóm að krefjast þess að friðargæslulið SÞ sé tafarlaust staðsett í Ísrael, eða að öðrum kosti slíta stjórnmálasambandi við Netanyahu og félaga.
mbl.is Vísar sögum af hugsanlegu vopnahléi á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning um ábyrgð í sakamálum.

Hér í þessari frétt er sagt frá niðurstöðu dóms í sakamáli , þar sem hinum dæmda er gert að greiða 30 milljónir í málskostnað, miskabætur og sakarkostnað, auk þess sem tveim öðrum þáttakendum í morðinu var gert að greiða um 10 milljónir hvor.

Auðvitað er eðlilegt að hinir dæmdu beri þann kostnað sem þeir valda og einungis réttlátt að aðstandendur fórnarlambsins hljóti réttlátar fébætut fyrir óbærilegan missinn, en spurningin sem ég vona að einhver vís geti svarað mér er einfaldlega hvort hinum dæmda sé sannarlega gert að standa skil á greiðslunum - eða hvort óskyldum skattgreiðendum úti í bæ sé einfaldlega gert að ábyrgjast reikninginn, bara si svona?


mbl.is Banamanninum gert að greiða tæpar 30 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband