Ákæra fyrir meðvirkni að stríðsglæpum.

Lögum samkvæmt ber hverjum að koma slösuðum til aðstoðar og ennfremur segir að hver sá sem stendur mann að broti sem sætt getur ákæru og varðað getur fangelsi hefur heimild til að handtaka hann.

Varðandi hræðilega og nær dagleg þjóðarmorðin á Gaza, þá vil ég sem óbreyttur borgari ákæra Forseta Íslands, ríkisstjórn og alla embætismenn þjóðarinnar að meðtöldum biskupi og prestum landsins fyrir að brjóta þessi skýru lög með svívirðilegu aðgerðaleysi sínu.
Þó ekki væri nema eitt barn sprengt til dauða í Ísrael með dyggri aðstoð Bandaríkjamanna og rökkum þeirra að okkur meðtöldum, þá bæri að grípa í taumana, en þetta þjóðarmorð, sem virðist slá út Stalingrad, Dresden og Hirósíma hvað grimmd og eyðileggingu snertir og það í beinni útsendingu sjónvarpsstöðva hreifir ekki við öllum þessum valdhöfum okkar, sem bara láta þetta sem vind um eyru þjóta - helvítis kvikindin


mbl.is Þjáningar fólks óbærilegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Þegar Úkraínsk stjórnvöld hófu stríð 2014 gegn íbúum svæða í Úkraínu þar sem á bjuggu eingöngu Rússar vonuðust þeir eftir því að Rússar skærust í leikinn, sem og varð.

Stjórnvöld í landinu virtust hafa fyrirfram tryggt sér að þá myndi NATO og Evrópusambandið skerast í leikinn til stuðnings Úkraínumönnum. Rússneski björninn yrði þá loks lagður að velli eins og Vesturlönd hafa dreymt um svo öldum skiptir. Ekki er þessu stríði lokið enn.

Úkraínumenn hafa til þessa tapað hundruð þúsunda mannslífa á uppátæki sínu sem reyndar er runnið undan rifjum Vesturlandabúa. Það sama er að segja um svokallaða Palestínumenn og Hamas. Þeir eru hvattir áfram af Íran og fleiri ríkjum, sem vilja sjá Ísrael hverfa af kortinu.

Með árás sinni á Ísrael vissu Hamasmenn að þeir fengju það svar sem orðið er. Von þeirra er að ekki aðeins Múslimaríkin heldur og einnig Alþjóðasamfélagið snúist gegn Ísrael og sameiginlega afmái Ísrael. Hamas hefur lýst yfir markmiði sínu að eyða Ísrael og drepa alla Ísraela til að breyta svæðinu í múslímskt guðveldi. Þetta á reyndar við um heiminn allan þar með talið Ísland.

Eins og Rússar höfðu engan annan kost en að verja landamæri Rússlands og samlanda sína í Úkraínu, þannig hefur Ísrael nú engan annan kost en að afmá Hamas og Gaza vilji þeir sjálfir halda velli sem ríki.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 6.12.2023 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband