Duga fimm prósent fyrir Bessastöðum?

Enn bætist frambærilegur frambjóðandi við í hóp þeirra einstaklinga sem náð hafa 35 ára aldri og óska eftir að verða næsti Forseti Íslands.

Með núverandi fyrirkomulagi nær sá frambjóðandi kjöri sem flest atkvæði hlýtur eftir að gild atkvæði hafa verið talin að kosningu lokinni.

Það hlýtur að vera á færi flestra að reikna út þann fræðilega möguleika að ef tala frambjóðenda er hærri en tuttugu, þá gæti sigurvegarinn staðið uppi með einungis rúmlega fimm prósenta þjóðarfylgi sér að baki.

Auðvelt er að ímynda sér að ýmsir hlutfallslega fámennir sérhagsmuna hópar kjósi sinn frambjóðanda burtséð frá hagsmunum annara landsmanna og því hlýtur að blasa við, að kjósa verður í a.m.k. í tveimur umferðum til að tryggja að næsti Forseti Lýðveldisins njóti sannarlega fylgis meirihluta þjóðarinnar.

Liggur þetta ekki í augum uppi?


mbl.is Halla Tómasdóttir ætlar í forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dominus Sanctus.

Dominus Sanctus., 17.3.2024 kl. 15:58

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Þetta verður mun harðar en fyrir 8 árum
Frambjóðendur verða krafðir svara um afstöðu sína til Gasa og öllu því tengt
hælisleitenda
forsetakosninga í USA og fl
Það mun ekki nægja að tala bara fallega um mjúku pakkana og að öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir og umhverfisvæn

Grímur Kjartansson, 17.3.2024 kl. 17:42

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég er sammála ykkur, en það er nú svona og svona með öll fögru fyrirheitin, rétt eins og saga okkar ætti að kenna okkur.

Jónatan Karlsson, 17.3.2024 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband