Tillaga um breytingu á fyrirkomulagi komandi Forsetakosninga.

Þann 26. apríl rennur framboðsfrestur út og 2. maí mun landskjörstjórn auglýsa hver eru í framboði til forseta.

Kosið verður til embættis forseta Íslands 1. júní 2024.

Opnað hefur verið fyrir rafræna söfnun meðmæla fyrir forsetaframboð á Ísland.is og eru nú í dag laugardaginn 9. mars, sautján frambjóðendur þegar skráðir til leiks og byrjaðir að safna meðmælendum og verða hver um sig að ná a.m.k. 1500 nöfnum úr öllum landsfjórðungum rafrænt eða skilmerkilega undirrituðum á hefðbundin máta fyrir tilskildan tíma.

Ef að líkum lætur mun fjöldi frambjóðenda verða margfalt meiri en áður hefur þekkst og því blasir við sá möguleiki að tilvonandi Forseti Íslands nái kjöri með aðeins 5 - 10% kjörfylgi að baki og hlýtur það að kallast óásættanlegt.

Tilvonandi kosninga fyrirkomulagi verður hreinlega að breyta, eða hagræða á þann veg að sá frambjóðandi sem sigrar hafi fylgi meirihluta kosningabærra Íslendinga sér að baki.

Svipað kosninga fyrirkomulag þekkist víða og hefur auðvitað í för með sér aukna fyrirhöfn og kostnað, en með nýrri tækni í takti við nýja tíma er auðveldlega hægt að halda fyrri 1 - 2 hluta kosningana rafrænar, en kjósa loks á hefðbundinn máta á milli þeirra tveggja frambjóðenda sem eftir standa á sjálfan kjördaginn 1. júní, svo allur þorri landsmanna megi vel við una.


mbl.is Salvör Nordal íhugar framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Allar kosníngar á Íslandi, síðan í maí 1944, eru valdar og rippaðar eins og strigapoki.

Guðjón E. Hreinberg, 9.3.2024 kl. 11:49

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Guðjón.

Þú hefur örugglega á réttu að standa, líkt og reyndar í öðrum tilvitnunum þínum á bloggi þínu í dag, hér á mbl.is.

Helsta ástæða þess að ég læt mig dreyma um að fá með einhverjum ráðum, heiðvirðan þjóðkjörinn aðila í stól forseta okkar auðuga lands, þar sem meðal þjóðartekjur á hvern okkar eru í raun hærri en þjóðartekjur hvers innfædds Kúweits búa, en íbúafjöldi landsmanna er mjög ámóta.

Í stað þess að rölta um í hvítum skikkjum og fílósófera, þá geta þeir huguðustu okkar í mesta lagi skipts á varfærnislega orðuðum skoðunum okkar yfir ódýrum kaffibolla t.d. hér á mbl.is - enn sem komið er!

Að lokum tilvitnun í ljóð Steins Steinarrs, Samræmt göngulag fornt:

Álútir skulu menn ganga! og hoknir í hnjánum!

Og horfa með stillingu og festu á íslenska jörð!

Jónatan Karlsson, 9.3.2024 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband