Íslenska geðveikin.

Ég minnist þess gjarna eftir lestur frétta á borð við þessa, að mér var tamt að segja hér á árum áður, að til að viðhalda geðheilsu hér á landi, þá væri a.m.s.k. ein árleg utanlandsför nauðsynleg og sýnist mér nú að ég hafi fyllilega haft á réttu að standa.
Nú eftir stutt jólafrí erlendis, þá blasir við mér frétt hér á mbl.is um nýja bílastæðastefnu meirihlutans í borginni.

Sú raungerða hugljómun varaformanns umhverfis-og skipulagsráðs höfuðborgarinnar á einum þessara svokölluðu þéttingar reita Reykjavíkur sem kemur hér greinilega fram er ágætt dæmi um enn eina vitleysis þvingunina til viðbótar við allar hinar skerðingarnar, sem flestir fullfærir vegfarendur, aðrir en að mínu mati þröngsýnt vinstri-öfga liðið, stendur fyrir.

Þarna er sem sagt verið að troða fjölbýlishúsi fyrir við Snorrabraut með fáum eða engum bílastæðum fyrir íbúana, sem opinberar þessa nýju stefnu í allri sinni dýrð.

Fyrir utan hlægilega takmarkaða getu og hæfileika þeirra sem fá greitt fyrir að annast umferðar flæði í þessari litlu borg sem Reykjavík sannarlega er, þá get ég sem eineltur akandi vegfarandi bætt við að minn fyrsti reikningur ársins svokallaður var bifreiðaskattur upp á rúmar 23,000 og ofan á það get ég nefnt að í gær keypti ég bensínlítran á 255 krónur á Ítalíu, en rétt áðan hér hjá Olís á 329,60.

Þessi kurteislegi útblástur minn um vanhæfni borgaryfirvalda er einungis brota brot af hörmulegu ástandinu og verð ég því miður að láta í ljós það álit mitt, að hér á landi sé ekki einn einasti hlutur sem ég geti fullyrt að sé til fyrirmyndar.


mbl.is Borgarbúar samnýti bílana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég þakka þér innlitið Guðmundur.

Það er sannarlega ömurlegt að upplifa hrörnun og niðurrif trúar og menningar okkar, eins og þú kemst sjálfur að orði.

Það er því eins og tímana tákn að þetta fyrrum íhaldssama og virðulega dagblað sem við höldum enn trússi okkar við, styðji við gróft taumleysið í máli og myndum sem nú leyfist, en þó allt að því virðist einungis á kvenlægum forsendum, því í öllu sem að okkur körlum snýr, þá eru öfgarnar heldur betur aðrar með heykvíslum og opinberum útskúfunum.

Loks er spilling, sukk, svínarí, grimmd og ofbeldi hér á landi einhverra hluta vegna í svo örum vexti, að jafnvel friðsömustu borgarar virðast nú loks tilbúnir að svara einhliða áróðri og taktföstum stríðsbumbum stóra bróðurs og reiðubúnir að gleyma öllu hjali um frið og ævarandi hlutleysi og segja óvininum stríð á hendur - hvað sem það kostar.

Jónatan Karlsson, 8.1.2023 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband