18.5.2020 | 07:17
Sólarflug
Það er augljóst að ráðfrúinn er að gefa grænt ljós á að þessi svokölluðu ferðaþjónustufyrirtæki geti hirt eða stolið þessum greiðslum viðskiptavina sinna, því ef þeir eiga ekki peninginn núna, þá eiga þeir hann ekki frekar þegar hjólin taka að snúast á ný.
Þetta minnir mig á þegar ég arkaði í kringum 87´ inn á skrifstofu Sólarflugs á Vesturgötunni og greiddi 30.000 fyrir ferð til Köben í reiðufé, en las tveim dögum seinna um lokun þessarar frábæru hugmyndar Guðna í Sunnu, eins og bossinn var kallaður og auðvitað varð aldrei um neinar endurgreiðslur eða bætur að ræða.
Ekki príma frumvarp fyrir neytendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.