8.6.2019 | 11:20
Burt með þessa óheillastjórn.
Það blasir hreinlega við að lævísleg áform ráðherra og flestra þingmanna þessarar ríkisstjórnar Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks ganga í berhögg við skoðanir og vilja meirihluta landsmanna og þá sérstaklega þeirra eigin flokksmanna, eins og allir sjá og enginn heilvita maður getur mótmælt.
Nú á síðustu dögum virðist Katrínu forsætisráðherra renna blóðið til skyldunar og hefur imprað á þeim möguleika að fresta viðtekt þessarar óskiljanlegu gjafar auðlinda landsmanna fram á haustið, þökk sé einarðri andspyrnu þjóðernissinna á Alþingi.
Nú þegar hillir undir andrúm til umhugsunar fram á haustið, þá sýna og sanna þeir tveir smáflokkar sem helst hafa á stefnuskrá sinni að færa stjórn landsins undir erlend yfirráð, að einmitt helsti ótti meirihluta þjóðarinnar eigi við rök að styðjast, nefnilega með áköfum mótmælum þeirra við allar tafir á samþykkt landráða samningsins.
Persónulega er ég svo tortrygginn, að þegar áhrifamenn taka ákvarðanir sem rakalaust ganga þvert á heilbrigða skynsemi og með öllu óskiljanlegar, þá hljóti einfaldlega að vera maðkur í mysunni, svo ekki sé meira sagt.
Þér er ekki boðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.