Óviðeigandi og ósmekklegt

Íslenskum konum er óneitanlega margt til lista lagt, en nákvæm lýsing á hvernig þær geti gælt við píkuna á sér þannig að þær fái nú mest út úr að rúnka sér, er líklega óþörf, því til frekari upplýsingar fyrir blaðamann, þá því miður, eru konur hvergi í heiminum jafn lausgyrtar og "fjörugar" eins og einmitt hér á Íslandi og styðst ég þar aðeins við staðfestan fjölda lausaleiksbarna og fjölda skráðra klamedíu tilfella miðað við fólksfjölda, ef út í þá sálma er farið.

Það eru þó eflaust fjölmargir einstaklingar áhugasamir um berorðar kynlífslýsingar af öllu tagi, en ég verð að segja að mér þykir Morgunblaðið setja niður við birta greinar af þessu tagi og þætti mér eðlilegra að blaða"maður" og viðmælandi finndu sér annan og meira viðeigandi vettvang fyrir frekari umfjöllun um örvun kynfæra þeirra og létu "alvöru" blaðamönnum eftir að fullnægja þörfum "venjulegra" frétta þyrstra og upp til hópa, siðprúðra lesenda þessa fornfræga dagblaðs.


mbl.is Fullnægingarlaus 36 ára kona spyr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Morgunblaðið er jú blað allra landsmanna, enda er maður alltaf að reka augun í nýjan fróðleik í blaðinu. Þessi grein höfðar sjálfsagt til margra kvenna, þótt ekki gagnist hún mér. En það er nú bara gott og blessað, að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi í þessu ágæta blaði enda á þetta ekki að vera neitt feimnismál.

Steini (IP-tala skráð) 28.4.2014 kl. 22:42

2 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ofsalega smekklegt.

Kynsjúkdómar og þunganir, allt konum að kenna.

Karlmenn eru þar algerlega saklausir, enda ófrjóir og stunda helst ekki kynlíf fyrr en eftir giftingu.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 28.4.2014 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband