Jón eða Jón barnaníðingur

 Fyrir fáeinum dögum rakst ég á frétt, sem gekk í stuttu máli út á það að
 þingkonur í Nigeriu væru að krefjast afsagnar þarlends ráðherra, vegna þess
 að hann, rúmlega fimmtugur maðurinn hafði gifst þrettán ára gamalli stúlku frá Egyptalandi og   fylgdi sögunni að hann hefði greitt fjölskyldu hennar 100 þúsund dollara í
 heimamund. Það fylgdi ekki sögunni hvursu frekur eiginmaðurinn væri til
 brúðarinnar ungu, en yfirbragð greinarinnar var undir merkjum aðdáunar á
 röggsemi þingkvennana, sem sættu sig ekki við þessa barnaníð.
 Síðan er það í gærkvöld að ég sé afskaplega keimlíka frétt héðan úr sjálfu
 bananalýðveldinu, þar sem rætt var við unga móður í kastljósi sjónvarpsins,
 að mér heyrðist 14 ára gamla og var markmið fréttarinnar að koma á framfæri
 kvörtunum vegna dræmra viðbragða félagsmálayfirvalda um fjárhagsaðstoð við
 hina ungu móður. Stúlkan var reglulega manneskjuleg en sagði sem var að
 hana langaði til að klára grunnskólann, en það væri erfitt við þessar
 aðstæður. Eitthvað minntist hún síðan á að pillan hefði ekki virkað sem
 skyldi en að hún væri í góðu vinfengi við tvítugan barnsföðurinn.
 Þarna gengur fréttin aðalega út á stirðbusahátt félagsmálayfirvalda, en í
 mínum karllæga einfeldnislega hugarheim, þá sé ég nú ekki stóran mun á
 atferli þessara tveggja fullorðnu karla sem koma við sögu, nema hvað sá nigeríski
 var heldur eldri en
 giftist þó sinni stúlku, auk þess að inna af hendi ríkulegan heimamund, en
 enginn vafi leikur á að sá íslenski gekk alla leið í leiknum við sitt
 stúlkubarn, eins og föngulegur ávöxtur þeirra bar vott um. Þarna finnst mér
 vanta ýmislegt uppá fréttamenskuna hjá "Gróu í Efstaleiti" - eins og
 vanalega, en fjölmargar spurningar eru þarna óspurðar, eða er það bara ég
 sem er svona þröngsýnn og neikvæður?  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband