Í Ísrael eru mótmælendur skotnir eins og hundar.

Íslensk lögregla sást stugga við mótmælenda við Alþingishúsið auk þess sem fámennur hópur lögreglumanna beitti piparúða í varnarskyni og urðu þær stympingar til þess að nokkrir þingmenn og auðvitað önnur rómuð góðmenni þjóðarinnar fengu áfallahjálp og kröfðust venju samkvæmt hefnda og helst afsagna.

Það er einkennandi fyrir ráðamenn og reyndar yfirstéttina alla og hirð hennar hvað hún er ofur viðkvæm og heilög í orði, en í borði er slær hún flestum þróunarríkjum við í spillingu og grimmd, eins og þessi frétt frá aðförum vinaþjóðar okkar ber með sér, en þangað skulum við skunda með tónlist og gleði og helst í góðum hópi ráðherra, forseta og annara fyrirmenna.

Þá skal nú sungið og dansað og glaðst yfir velsæld og bjartri framtíð í kjölfar samþykktar áfangasigurs orkusölupakkans þriðja, eins og óhætt er að kalla hann - svo eitthvað sé nú nefnt.

Vonandi láta þó veislugestir Eurovision ekki nokkur blóðug lík eyðileggja gott partý.


mbl.is Tveir unglingar látnir í átökum á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. mars 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband