18.6.2024 | 03:03
Barbarossa hvatning Bjarna á 17. júní.
Þessi svokallaða hátíðaræða Bjarna Ben á Þjóðhátíðardaginn 17. júní 2024, var eiginlega allt annað en hátíðleg.
Þarna stendur trausti rúinn stjórnmálamaður frammi fyrir þjóð sinni og prédikar öðru fremur nauðsyn þess að ganga í takti við ályktanir félaga hans í NATO gegn óvininum í austri, sem minnir óneitanlega á auglýsingar stjórnvalda hjá mörgum þeim sömu vinaþjóðum hans, á blómaskeiði hernáms þjóðverja í Evrópu, nema hvað þá var hvatningin í orði kveðnu: Baráttan gegn Bolsévismanum.
Auðvitað gat Bjarni ekki annað en nefnt nokkur atriði á borð við jafnrétti og sjálfbæra nýtingu auðlinda, sem ástæða er til að gleðjast yfir, en öll þau atriði sem hann lét ósögð eru líklega þau sem eftir þessa ræðu hans standa.
Hann talaði einnig rjóður af innlifun um neikvæða umfjöllun samfélagsmiðla, skautum, netárásir, falsfréttir og ill undirróðursöfl sem láti í auknum mæli til sín taka.
Minnir ekki þessi ræða Bjarna að nokkru leyti á fræga ræðu Joseps Göbbels á síðustu dögum Þriðja ríkisins, þegar allt var í reynd tapað og komið í kalda kol, þegar hann boðaði: Volksturm?
![]() |
Þakkaði Guðna og óskaði Höllu velfarnaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.6.2024 | 14:05
Vængstýft landslið.
Ég er alla jafna annálaður bjartsýnismaður, líkt og allir landsmenn mínir, sem treyja þorrann árið út og árið inn hér í vonlausri spillingu og frændhygli, á hraðri leið til fjandans.
Þetta karla landslið okkar í knattspyrnu, sem einungis fyrir fáum árum gerði garðinn frægan og hreinlega skóp milljarða tekjur beint og óbeint fyrir Þjóðarbúið og KSÍ er nú svipur hjá sjón og harla litlar líkur á sigri eða jafntefli gegn Englandi, heldur gætum við tapað sögulega stórt, þó 14 - 2 tapið um árið gegn Dönum verði vonandi ekki slegið.
Raunhæfur sigur öfga kerlinga yfir montnum karlrembu svínum gæti líklega skilað svona 7 - 0 tapi okkar efnilegu óspilltu sveina, án okkar bestu manna - ef vel gengur.
![]() |
Við hverju má búast? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2024 | 12:23
Óþolandi kuldi og afskiftaleysi þingmanna.
Það er ömulegt að enginn þingmaður sjái ástæðu til að krefjast þess að ríkisstjórn Íslands mótmæli af fullri alvöru svívirðilegu framferði gyðinga gagnvart varnarlausum íbúum Gaza.
Það virðist enginn allra þessara kjörnu fulltrúa þora, eða treysta sér til að krefjast þess að Ísland slíti stjórnmálasambandinu við Ísrael, því það er líklega öruggara með tilliti til frekari stjórnmálaframa, að leiða bara hugann að einhverju allt öðru.
![]() |
Tugir drepnir í árás Ísraelshers á skóla SÞ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.6.2024 | 06:03
Siðvæðingar er þörf.
Varðandi hrun Vinstri grænna og brotthvarfs Katrínar Jakobsdóttur úr íslenskum stjórnmálum, þá kemur upp í hugann máltækið: Farið hefur fé betra.
Hvað fyrrverandi forsætisráðherra og forseta frambjóðanda snertir, þá er þess líklega brátt að vænta, að hún komi svo að segja út úr skápnum og snúi sér að sínum sönnu hjartans málum í þágu WHO, NATO, ESB eða annara vel borgandi atvinnuveitenda.
Kjör Höllu Tómasdóttur sýndi svo ekki verður um villst, að kjósendur margra ágætra frambjóðenda völdu fremur að kjósa taktískt, einungis til að koma í veg fyrir að spillingaröfl þau, sem eru á fullri ferð með að ræna þjóðarauðlindum okkar allra, með því að eignast sinn eigin stimpil vísan á Bessastöðum og vonandi verður Halla þess trausts verðug.
Nokkurir kolsvartir sauðir standa enn í vegi fyrir siðvæðingu íslenskra stjórnmála og fer þar auðvitað fremstur höfuðpaurinn sjálfur og örugglega illræmdasti og óvinsælasti pólitíkus Íslandssögunar, Bjarni Benediktsson, með Þórdísi Kolbrúnu og nokkra þæga hirðsveina á hælunum.
Arnar Þór Jónson og nokkrir aðrir frambjóðendur á borð við Ástþór og Steinuni Ólínu kveiktu í raun og veru bál það sem náði að stöðva formlega yfirtöku Bessastaða og munu vonandi með hjálp góðra úr öllum stéttum, flokkum og ómengaðra fjölmiðla á borð við Samstöðina og auðvitað Útvarp Sögu að keyra þessa siðbót áfram uns landinu verður borgið.
![]() |
Vinstri græn gjalda afhroð í nýrri könnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.6.2024 | 01:26
Fram fram fylking.
Ágæti Arnar Þór
Nú verður ekki aftur snúið, þó allt stefni í sigur Höllu Tómasar í forsetastól og var hún að mínu mati næst besti kosturinn á eftir þér sjálfum og fari svo, þá megi henni þá farnast vel.
Mér sýnist þú greinilega eiga þúsundir harðsnúinna fylgismanna, sem munu líklega hópast með þér í þann flokk sem þú kýst að fylgja, hvort sem um Miðflokk eða Flokk fólksins verður að ræða, því þótt hvorugir séu þeir óspjallaðir, þá hafa þeir hvor um sig margt gott til brunns að bera og því léttara að velja annan hvorn þeirra, en að byrja frá grunni á nýju afli.
Baráttuna gegn spillingunni og landsölunni verður nú að leiða innan úr sölum Alþingis og leiða það aftur til þess vegs og þeirrar virðingar sem núverandi fulltrúar hafa gloprað niður.
Lengi lifi Ísland.
![]() |
Væntir þess að skilaboðin nái í gegn að lokum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.5.2024 | 13:57
Öllum brögðum beitt til að stöðva Arnar þór Jónsson.
Undanfarnar vikur og mánuði hafa reglulegar skoðanakannanir þriggja einkafyrirtækja tjáð landsmönnum hvernig staða efstu og vinsælustu frambjóðenda í komandi forsetakosningum lítur út á hverri stundu, en jafnt og þétt þó minnt á að í raun og veru séu atkvæði greidd öðrum á borð við Arnar Þór Jónsson því glötuð atkvæði.
Ég hef saknað þess sárt að sjá skoðanakannanir frá Raunvísindastofnun HÍ og reyndar velti því fyrir mér hvort áhugi háskólamanna á þessum kosningum sé ekki til staðar, eða hvort arðbærara sé fyrir fjárvana háskóla að halda sig til hlés að þessu sinni.
Ísland stendur nú á þeim tímamótum að þjóðirnar tvær sem landið byggja, standa nú andspænis hvor annari, því samkvæmt stjórnskipun lýðveldisins verður þjóðkjörinn forseti ætíð að skrifa undir hver þau lög sem sem frá trausti rúnnu Alþingi kunna að berast til löggildingar.
Af þeim frambjóðendum sem helst gætu reynst þrándur í götu duldra áforma núverandi ráðamanna varðandi alla framtíð almennra Íslendinga gegn lævísum áformum svokallaðra alþjóðasinna er að öðrum ágætum frambjóðendum ólöstuðum, Arnar þór Jónsson.
Ég hvet ykkur öll til að grípa í taumana og stöðva óréttlætið, spillinguna og föðurlandssvikin og tryggja okkur öruggan föðurlandsvin til varnar á Bessastaði.
![]() |
Arnar Þór: Gerir mikla fyrirvara við skoðanakannanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þar sem ekki er stafkrókur hér á vefútgáfu Morgunblaðsins þennan laugardagsmorguninn um þau hrikalegu stríðsátök sem Íslenska þjóðin tekur ýmist beinan eða óbeinan þátt í um þessar mundir, þá finn ég mig knúinn til að vekja athygli á raunverulegu ástandi þeirra mála, þó dauðaþögn mbl.is endurspegli auðvitað ekkert annað en vandræðalega þögn Reuters o/co.
Hvað átök okkar í NATO við Rúsland varðar, þá virðist það með degi hverjum ljósara, að mikill meirihluti ríkja og íbúa jarðar tekur fremur afstöðu með Rússum, í átökunum í Úkraínu við Bandaríkin og dygga stuðningsmenn í Evrópu og virðist staðan þar, um þessar mundir, hreint ekki góð.
Önnur átök sem þægar málpípur yfirvalda hér á Íslandi sjá ekki ástæðu til að fjalla mikið um, er auðvitað sú staðreynd að blessaðir vinir okkar, gyðingarnir í Ísrael og auðvitað lýðræðislega kjörnir leiðtogar þeirra hafa nú loks verið dæmdir fyrir glæpi sína, sem ég trúi ekki að þjóð mín geti varið og haldið óskiptum tengslum við Ísrael- eftir sem áður.
Án þess að fjölyrða um þetta hræðilega þjóðarmorð í Palestínu, þá læt ég gamlan gyðing hafa orðið: https://www.youtube.com/watch?v=AxLtxX7kPcU
og enn fremur sérstaklega öldungardeildar þingmanninn Bernie Sanders: https://www.youtube.com/watch?v=rvnYAcn8o3g
Þessir tveir öldnu heiðursmenn útskýra að mínu mati allt sem segja þarf og hvet ég sérstaklega íslenska síonista að gefa sér tíma til að hlusta á orð þeirra tveggja.
22.5.2024 | 15:49
Eðlileg krafa um alþjóðlegt kosningaeftirlit í komandi forsetakosningum.
Núverandi eftirlit með framkvæmd kosninga hér á Íslandi hlýtur að vera fullreynt, því það er síður en svo hafið yfir allan grun um óskeikulleika, eða með öðrum orðum, rökstudd ástæða til að óttast kosningasvik og ætti að nægja að nefna Borgarnes framkvæmdina síðustu í því samhengi og auðvitað þá undarlegu ráðstöfun að hætta að nota lögreglu til að annast flutning kjörgagna, líkt og tíðkaðst í siðuðum löndum og sem býður því auðvitað upp á fjölbreytta möguleika á misferli.
Almenningur á Íslandi ber lítið sem ekkert traust til yfirvalda og það kannski skiljanlega, svo nú hlýtur það einungis að kallast eðlileg krafa að hlutlausir aðilar standi vörð um öruggt eftirlit í þessum komandi kosningum á þessum síðasta varnagla þjóðarinnar gegn óheillyndum þeim og landráðum sem nú vofa yfir sjálfstæði og bjartri framtíð Íslands.
![]() |
100 kjörseðlar týndir: Sagðir stolnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.5.2024 | 10:27
Hver eru eðlileg viðbrögð Íslands?
Nú liggur fyrir að Forseti og Utanríkisráðherra Írans létust í þyrluslysi í norðurhluta landsins og venju samkvæmt eru samúðarkveðjur þjóðarleiðtoga byrjaðar að streyma til Írans, eins og venja býður.
Nú hefur ekkert heyrst í fjölmiðlum hér um viðbrögð Forseta Íslands og kemur manni, sem íslenskum ríkisborgara til hugar, hvort Íran sé af yfirvöldum mínum álitið vinsamlegt ríki, eða hvort Forseti minn bíði aðeins ráðvilltur og örvinglaður eftir frekari fyrirskipunum frá erlendum yfirvöldum um á hvern hátt hann skuli bregðast við!
![]() |
Forsetinn og utanríkisráðherrann látnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2024 | 15:03
Við erum nefnilega vonda þýið.
Það er blátt áfram sorglegt að stórhluti íbúa okkar á Vesturlöndum styðji augljósar lygar og illvirki svokallaðra bandamanna okkar og að mínu mati, ógeðslegra taglhnýtinga þeirra, á borð við fígúruna núverandi utanríkisráðherra okkar, sem endurtekur nú nánast fullkomlega skítverk fyrirrennara síns, Gunnars Braga Sveinssonar í kyrfilega auglýstri heimsókn hans til mótmælenda í Kænugarði, þess hins sama og missti síðar allt niður um sig á Klaustursbars fylliríinu fræga, hérna um árið.
Í aðdraganda stjórnatbyltingar réttkjörins forseta í Kænugarði 2010, þar sem óvart náðist upptaka af Viktoríu Núland, varautanríkisráðherra Bandaríkjana, þar sem hún upplýsti forseta eins Baltisku landanna um að stjórnvöld hennar hefðu stutt þaulskipulagða byltinguna í Úkraínu um heila fimm milljarða dollara - og það líklega ekki minnst í mútur.
Skömmu fyrir byltinguna voru mættir á götuvígin, varla þó á eigin kostnað ýmsar skrautfjaðrir á borð við Utanríkisráðherra Íslands og auðvitað allt í beinni útsendingu Reuters, CNN og BBC - Hringir nú þessi ferð Þórdísar Kolbrúnar til Georgíu ekki einhverjum bjöllum?
![]() |
Þórdís Kolbrún á leið til Georgíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |