25.3.2023 | 12:30
Þörf og holl lesning fyrir herskáa.
- Við höfum þungar áhyggjur af hópaftöku allt að 25 rússneskra stríðsfanga og óvígafærra hermanna, sem við höfum skjalfest gögn um, í höndum úkraínskra hermanna, sagði Matilda Bogner, yfirmaður Mannréttindavaktar Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu, á blaðamannafundi í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði í dag -
Þessa fullyrðingu Yfirmanns Mannréttindavaktar SÞ ættu stríðsmangarar á borð við Þórdísi Kolbrúnu, Katrínu Jakobsdóttur og fleiri af því sauðarhúsi á borð við Björn Bjarnason að lesa vandlega, áður en þau fara með bænirnar sínar í kvöld - eða öllu heldur bölbænirnar sínar.
![]() |
Segir aftökur stríðsfanga áhyggjuefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.3.2023 | 07:18
Súpa yfirvöld nú seyðið?
Það er eiginlega spaugilegt að sjá í Kastljósi ráðvilltan lögregluþjón reyna að útskýra vaxandi ofbeldið á götunum með því að kenna ungum mönnum um breytta skilgreiningu á ofbeldi og auðvitað áhorf á ljótt efni í fjölmiðlum.
Enn vandræðalegra var þó að spyrillinn þorði greinilega ekki að varpa fram spurningunni sem ekki mátti spyrja fyrir hönd okkar áhorfenda, en hún var auðvitað einfaldlega:
Eru þessir nýju boðberar grófs ofbeldis vatnsekta Íslendingar?
![]() |
Fimm handteknir eftir átök í heimahúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2023 | 10:58
Vanvitar við völd.
Ég fæ ekki orða bundist yfir þeirri frétt að meirihlutinn í Reykjavík hyggist enn hindra umferðarflæðið í borginni og nú síðast með því að leggja af aðra beygju akgreinina af Kleppsmýrarvegi til suðurs inn á Sæbrautina.
Það þekkja allir sem á annað borð nota þessi gatnamót (líkt og ég geri) að þessa ráðagerð mætti auðveldlega kalla vitfirringu, miðað við núverandi álag.
Í raun og veru þá blasir það við öllum heilvita ökumönnum á Reykjavíkursvæðinu, að með því að nota hugvit og tækni, þá mætti greiða stórlega fyrir eðlilegu umferðarflæði um borgina, sem auðvitað myndi hafa tuga milljarða sparnað í för með sér, sem ætla mætti að kæmi sér vel fyrir vanvitana sem halda um stjórntaumana í höfuðborginni, svo ekki sé minnst á minni mengun og aukin loftgæði.
Án þess að telja upp þau ótalmörgu minni og auðvitað stóru dæmin um aðfarirnar að jöfnu og þægilegu umferðarflæði borgarana, sem lagfæra mætti þó á skömmum tíma, þá hvet ég einungis Reykvíkinga til að sameinast um að koma þessari vanhæfu og nær örugglega spilltu borgarstjórn með alla fjármálaóreiðuna og borgarlínuvitleysuna út í hafsauga sem fyrst, áður en það verður um seinan.
![]() |
Umbætur gerðar á gatnamótum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.3.2023 | 10:55
Leikið með lýðinn.
Ísraelar eiga það sameiginlegt með Íslendingum, að stjórnvöld eru kjörin lýðræðislega af kosningabærum landsmönnum og svarar því öllum spurningum um raunverulegt innræti þjóðarinnar - eða hvað?
P.S.
Spurningin er öllu fremur hve mikið atkvæði kjörina fulltrúa okkar kosta, þegar til kastanna kemur?
![]() |
Fjöldi fólks mótmælir í Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.3.2023 | 16:09
Hvað ef Ísland hefði yfir eigin her að ráða?
Ímyndum okkur að Íslendingar hefðu haft nokkur hundruð manna þung-vopnaða herdeild yfir að ráða 10. maí 1940 og þá auðvitað undir stjórn Agnars Kofoed-Hansens lögreglustjóra, í stað þeirra fáu, en vel þjálfuðu lögregluþjóna sem hann hafði til umráða og sem stóðu aðgerðalausir hjá.
Nú getur hver og einn gert sér í hugarlund hvaða hörmulegu áhrif blóðug mótspyrna íslenskrar herdeildar hefði haft á farsæld þjóðarinnar næstu árin, eða jafnvel á gang styrjaldarinnar.
Afstaða almennings á Íslandi til stríðsaðila fyrir hernámið er enn nokkuð á huldu, en ljóst þykir hvar hjarta lögreglustjórans sló, þó aldrei kæmi það í veg fyrir störf hans í þágu íslensku þjóðarinnar á stríðsárunum.
Auðvitað eru allar vangaveltur um íslenskan her hreinasta rugl og þvæla, því allt annað en hlutleysi fyrir okkar litlu þjóð býður einungis upp á hættu á stórfelldum hörmungum, því að leggja allt undir á eina tölu eða aðila, líkt og svokallaðir ráðamenn okkar gera nú, er bæði heimskulegt og býður eðlilega þar að auki upp á rökréttar vangaveltur um spillingu og landráð.
Heimsveldi koma og fara, eins og sagan sýnir okkur öllum og blasir það nú hreinlega við í ljósi fjölmargra vísbendinga, að tími Bandaríkjana og leppa þeirra er að líða undir lok og einungis hægt að vona og biðja að þau horfist í augu við það án þess að tortíma öllu lífi hér á jörðu.
Ef smáríki á borð við Ísland velur á annað borð að binda trúss sitt við ljómandi stórveldi fremur en að sitja hjá, þá væri eflaust t.a.m. giftusamlegra að beina athygli okkar og auðsveipni allri í áttina til vina okkar í Kína.
![]() |
Viðbúnaður varðar þjóðaröryggi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |