Súpa yfirvöld nú seyðið?

Það er eiginlega spaugilegt að sjá í Kastljósi ráðvilltan lögregluþjón reyna að útskýra vaxandi ofbeldið á götunum með því að kenna ungum mönnum um breytta skilgreiningu á ofbeldi og auðvitað áhorf á ljótt efni í fjölmiðlum.

Enn vandræðalegra var þó að spyrillinn þorði greinilega ekki að varpa fram spurningunni sem ekki mátti spyrja fyrir hönd okkar áhorfenda, en hún var auðvitað einfaldlega:

Eru þessir nýju boðberar grófs ofbeldis vatnsekta Íslendingar?


mbl.is Fimm handteknir eftir átök í heimahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ríkislögreglustjóri telur lækninguna við, eða draga úr, ofbeldi ungu mannanna er að fá Stígamót til að fræða unga fólkið í skólum landsins. Drengir hafa hlustað á það í brátt áratug að þeir sé ónytjungar, ofbeldishneigðir, kynferðisbrotamenn, o.s.frv. Aðallega eru það konur sem halda þessu fram og karlfemínistar sem ætla að taka þátt í lækningunni.

Skoða þarf þjóðerni afbrotamanna. Það gerði sænskur blaðamaður fyrir nokkrum árum í nauðgunarmálum í Svíþjóð. Niðurstaðan kom engum á óvart!

Hef minnst á og geri nú, vantar alvöru rannsóknarblaðamenn á Íslandi. Þeir vilja allir vera á sveif með hópum sem hentar hverju sinni. Hentistefna!

Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 25.3.2023 kl. 08:44

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæl Helga Dögg.

Ég get tekið fyllilega undir með skoðunum þínum á skaðsemi öfga-feminisku innrætingunni sem tröllríður hér öllu og það að því virðist meira hér í öfgunum en annarstaðar á bólum heims og eins og þú segir svo réttilega.

Hvað varðar hemjulausan innflutninginn á svokölluðum hælisleytendum, þá ætti það að vera öllum ljóst að því mun fylgja holskefla vandræða - eins og hvívetna blasir við, ofan á allt fjárans ruglið og spillinguna sem fyrir er.

Jónatan Karlsson, 25.3.2023 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband