Móðursýki og galdrafár breiðist út í Evrópu.

Síðustu vendingar í Úkraínuátökunum, sem ekki ganga beinlínis reglulega vel, eru byrjaðar að hafa í för með sér hefðbundnar aukaverkanir, sem jafnvel minna á galdraofsóknir miðalda og síðar nornabrennurnar í Salem, undir lok sautjándu aldarinnar og loks vitfirrtan Volkssturm Josefs Göbbels í dauðastríði hins stórbrotna Þriðja ríkis Adolfs Hitlers.

Þó Ísland sé í nokkuri sérstöðu hér á mörkum Evrópu og Bandaríkjanna, þá gætir hér í ríkulegum mæli öfgafullra fylgifiska þessa hruns heimsyfirráða Vesturlanda, eins og engum ætti að dyljast.

Núverandi yfirvöld taka fullan þátt í að kynda undir allri tilfallandi móðursýki sem bláeygum þegnunum, líkt og öðrum vesturlandabúum er boðið upp á í stanslausri bábylju ráðandi fjölmiðla, þó nokkur blæbrigða munur sé á milli áróðursins austanhafs og vestan.

Sígillt áróðursbraggð nazista var að hafa lygina nógu stóra og ótrúlega, en hamra á henni stöðugt og látlaust og þannig myndi hún að lokum ná inn fyrir allar meðfæddar varnir áheyrendans, á borð við heilbrigða skynsemi, auk allrar fyrri vitneskju og nú erum við nákvæmlega að fylgja í fótspor heilaþveginna barna og gamalmenna Berlínar 1945, þegar við fylgjum glæpsamlegum yfirvöldum að málum og látum telja okkur trú um illan ásetning Pútíns og innrætis Trumps, svo ekki sé minnst á vaxandi loftlags-og veiru ógnir, auk meðfylgjandi kvilla á borð við nú síðast hlægilegt drónaflugið sem vætir nú buxur út um Evrópu alla og jafnvel hér.


mbl.is „Við eigum að vera tilbúin en ekki hrædd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Candace Owens næst?


mbl.is Ekkja Charlie Kirk fyrirgefur byssumanninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örlítil morgunhugvekja fyrir íslenska zionista og hyski þeirra allt.


mbl.is Macron fylgir í fótspor annarra vestrænna ríkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móðursjúkir Danir.

Líklega áttu dönsk yfirvöld, eða jafnvel einhverjir innfæddir óknyttastrákar heiðurinn af drónafluginu á Amager, sem í ljósi áróðurs þarlendra fjölmiðla, virðist hafa fengið meirihluta dönsku þjóðarinnar hreinlega til að pissa í buxurnar af hræðslu.

Líklega eru íslenskar valkyrjur þó óhultar, því þær ganga líklega hvort sem er með bleyjur alla daga í ljósi voðalegrar Rússagrýlunar, sem hér ríður röftum.

Það blasir auðvitað við að drónafréttin er einungis flutt taugaveikluðum Dönum í þeim tilgangi að bæta við ástæðum fyrir frekari vopnvæðingu Fjórða ríkisins og er það ekki í raun og veru fullkomlega órökrétt að láta sér í fúlustu alvöru detta í hug að Rússar gætu haft einhvern greinanlegan ávinning af því að ögra taugaveikluðum óstöðugum Baunum með svo gjörsamlega tilgangslausu athæfi?


mbl.is „Mikil hætta“ á skemmdarverkum í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirskipaði Netanjahú aftöku Charlie Kirk?


mbl.is Segja Ísrael hafa framið þjóðarmorð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

COVID 19 bóluefnið afhjúpað.


Þorgerður hikstaði og stamaði.

Þau rýrnuðu stóru fyrirheitin sem í loftinu eftir mótmælafundi íslensku þjóðarinnar lágu, en það kom ekki heldur á óvart.
mbl.is Fríverslunarsamningi við Ísrael ekki slitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska þjóðin krefst aðgerða í stað ónýts orðagjálfurs stjórnvalda.

Vilji Íslendinga kom greinilega fram á fjölmennum mótmælafundum um land allt, laugardaginn sjötta september 2025.

SLÍTUM TAFARLAUST ÖLLUM SAMSKIPTUM VIÐ HRÆÐILEGT AÐSKILNAÐARRÍKIÐ ÍSRAEL.



mbl.is Fjölmennt víða um land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn bætist við ný atlaga gegn eðlilegu umferðarflæði í Reykjavík.

Ég get ekki orða bundist yfir nýjustu málamynda ástæðu borgaryfirvalda höfuðborgarinnar til að bæta við enn einni ljósastýrðri tuga milljóna þrengingu til viðbótar í Lækjargötu og rökin fyrir framkvæmdinni eru byggð á sorglegu banaslysi sem varð þar á horninu, þegar skotbómulyftari ók frammúr strætisvagni með gaflana í nálægt meters hæð frá jörðu, rétt eins og banvæn spjót, sem auðvitað er skýlaust brot á mikilvægustu reglu lyftarastjóra, að hafa gaflana í akstri rétt yfir jörðu hvort sem er á vinnusvæði eða í umferð, sem auðvitað krefs enn frekari aðgæslu.

Hlutverk þeirra yfirvalda sem sjá um skipulag umferðarmála hér á höfuðborgarsvæðinu hlýtur að vera öðru fremur að skipuleggja umferðarmannvirki á þann veg, að flæði þeirra sem nota gangi greiðlega og örugglega fyrir sig og til þess auðvitað að beita öllu tiltæku hugviti og heilbrigðri skynsemi til að greiða úr því flókna verkefni, líkt og tíðkast víðast annarstaðar.

Ég væri fús til að eyða nokkrum klukkustundum af dýrmætum tíma mínum með þeim að því virðist dæmalausu einfeldningum sem störf hafa við rekstur og skipulag umferðarmála Reykjavíkur í vetvangsskoðun um helstu umferðaræðar Reykjavíkur einungis til að benda á og útskýra fyrir þeim á einfaldan hátt versta ruglið, bullið og ýmsa vankanta, sem oft mætti breyta og laga á einfaldan hátt.


mbl.is Sett verði upp umferðarljós við vettvang banaslyss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morðin virðast ekki snerta valkyrjurnar.

Það er ekki að sjá, að morðin á íbúum Palestínu raski ró þeirra Kristrúnar, Þorgerðar og Ingu, svo ekki sé minnst á brosmildar stöllurnar, biskupinn og forseta þjóðarinnar.

Alla eiga þær það sameiginlegt þessar konur, að geta haft áhrif í átt til að stöðva blóðbaðið og það einungis með opinberum yfirlýsingum hverrar þeirrar sem væri.

En það er líklega best að rugga ekki bátnum.


mbl.is Morðin ættu að hneyksla heiminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband