Með mannslíf á samviskunni?

Það er vonandi að sjúklingurinn sem komst ekki á Landspitalann vegna gerræðislegrar ákvörðunar og óskiljanlegrar þvermóðsku borgarstjórnar meirihluta höfuðborgarinnar lifi og heilsist vel, því það er einungis spurning um tíma hér í rok rassgatinu hvenær Dagur B. Eggertsson verður með mannslif á samviskunni, líkt og ég og fjölmargir aðrir hafa óttast og ítrekað varað við.

Það er óviðunandi að lífi og limum landsmanna sé hreinlega fórnað fyrir fjárhagslega hagsmuni og einfaldlega ömurlegt að þjóðin geti ekki áfrýjað óþveranum til dómstóla landsins, því þeir eru lika öllu trausti rúnir.


mbl.is Sjúkraflug komst ekki til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er lag að stöðva "Holocaust II"

Nú ríður á að Sameinuðu þjóðirnar verði staðfestar í stefnu sinni og sendi tafarlaust alþjóðlegar friðargæslusveitir á vettvang til að framfylgja samþykktum sínum og koma í veg fyrir frekari yfirgang og glæpi gegn mannkyni, því níðingsleg drápin á fólkinu á hernumdu svæðunum geta varla flokkast undir stríðsglæpi, þvi miskunnarlaus herra- þjóðin með fullkomnustu drápsvélar sögunnar etur þar kappi við grjótkast og heima smíðaðar rakettur, sem landtökufólk tínir siðan upp og hefur til sýnis fyrir gesti og gangandi.
Það ógeðfeldasta frá síðustu útsendingum CNN af reglulegum refsingunum var þó að sjá íbúa Tel Aviv fylgjast með fosfór árásunum í makindum úr þægilegri fjarlægð með popp og kók, hvetjandi sína menn til frekari "dáða"
mbl.is Landtökubyggðum gæti fjölgað mjög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandræðaleg blaðamennska.

Það er ekki mikið gert úr fagnaðarlátum íbúa Aleppo og reyndar Sýrlands alls i þessari frétt mbl.is, sem er töluvert frábrugðið þeim myndum af fagnandi Sýrlendingum sem skreyta forsíður fjölmiðla um heim allan aðfangadag jóla árið 2016.

það er reyndar sama "hógværðin" i annarri af forsíðufréttum dagsins, þar sem fjallað er um fordæmingu öryggisráðs S.Þ. a ólöglegu landráni gyðinga i Palestínu, en það sem láðist algjörlega að nefna i frásögn "blaðamanns" Mbl. er nefnilega sá fáheyrði atburður að fulltrúar Öryggisráðssins klöppuðu fyrir samþykktinni.

Þessar tvær fréttir og skömmustuleg framsetning þeirra hér i blaði dagsins, sýnir nefnilega greinilega hlutdræga afstöðu grút - máttlausa einstaklinga þeirra er gefa sig út fyrir að vera blaðamenn hér á skerinu.

Ég veit ekki hvort um er að kenna fávisku eða starfsöryggi, en mikið hlýtur hún nú að vera skömmustuleg blaðakonan unga sem átti pistil i helgarblaði Fréttablaðsins um síðustu helgi um t.a.m. Assad og Donald Trump.


mbl.is Fyrsta jólamessan í Aleppo í 5 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líf Donalds Trump er augsýnilega í mikilli hættu!

Þessar síðustu (hlægilegu) ásakanir um að Rússar hafi í raun komið Trump í forsetaembættið eru til þess falnar að rifja upp örlög annars Bandaríkjaforseta, sem fyrir rúmum fimmtíu árum síðan var upp á kannt við margar valdamiklar stofnanir á borð við CIA, FBI, mafíuna og samtök gyðinga.

Það blasir nú við að Kennedy var stilt upp fyrir framan aftökusveit með beinni eða óbeinni aðkomu fyrrnefndra samtaka og fyrir þá sem enn trúa fjarstæðukenndri skýringu stjórnvalda um að Oswald hafi myrt Kennedy, þá ættu hinir sömu að nálgast aðgengilegar upplýsingar um játningu James Files, en hann var einmitt maðurinn á hæðinni sem skaut forsetann hinni banvænu kúlu í gagnaugað.

Það er annars athyglisvert að heyra hvað orðrétt hvað starfslið Trump segir um þessar ásakanir:

Upp­lýs­ingat­eymi Trump neitaði ásök­un­um. „Þetta er sama fólkið og sagði að Saddam Hus­sein ætti gereyðinga­vopn,“ sagði í til­kynn­ingu frá skrif­stofu Trump.


mbl.is Segja Rússa bera ábyrgð á netárásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðvarandi spilling á Íslandi.

Nýjar upplýsingar um fjárreiður fyrrverandi forseta Hæstaréttar ættu ekki að koma nokkrum manni á óvart í ljósi þess rökrétta vantrausts sem þessar silkihúfur hafa áunnið sér í stig vaxandi mæli alla tíð frá hrópandi dómsmorðum sakborninganna úr Guðmundar og Geirfinnsmálum.

Viðvarandi spilling og samtrygging ofdekraðra embættismanna hér á Íslandi er blátt áfram orðinn ógeðsleg og óskiljanlegt að heiðarlegir illa launaðir lögregluþjónar myndi skjaldborg um alla þessa óþokka í óþrifaverkum þeirra öllum.

Úrskurður kjaranefndar hefur nýlega vakið ógleði allra venjulegra landsmanna og nú síðast í dag staðfesti úrskurðarnefnd fjarskipta – og póstmála að þrengja enn frekar að einu óháðu útvarpsstöð landsins og örugglega þeirri vinsælustu, með því að svipta hana annari útsendinga rás hennar.

Þessi aðgerð, svo ekki sé nú minnst á hlægilegar ákærur Lögreglustjóra Reykjavíkur í samkrulli við Ríkissaksóknara á hendur starfsmanni sömu stöðvar í besta Kafka stíl, eru svo augljóslega að mínu mati samkvæmt skipun eða fyrirmælum frá stjórnendum RÚV og 365 og undirstrika aðeins enn frekar þessar fullyrðingar mínar.

Það væri annars nógu fróðlegt að sjá á prenti nöfn þeirra sem skipa þessa úrskurðarnefnd fjarskipta


mbl.is Segja Markús ekki hafa farið að reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mismunandi hlutskipti liðhlaupa.

Liðhlaupinn Bowe Bergdahl liðþjálfi á yfir höfði sér langan fangelsisdóm og helst dauðadóm að mati Donalds Trump, eftir að hafa yfirgefið hersveit sína í Afghanistan árið 2009.
Nú vekur þessi auðvirðilegi svikari og raggeit réttláta reiði og hneikslan samlanda sinna með því að fara fram á náðun Obama forseta á síðustu metrum hans í Hvíta húsinu.

Þessi frétt er eiginlega hálf spaugileg í ljósi þess að hér í öðrum NATO löndum handan Atlantsála eru allir þeir er sjá minnstu meinbugi á óheftri og skilyrðislausri móttöku tuga og hundraða þúsunda ungra erlendra manna er hingað streyma, svívirtir og kallaðir öllum illum nöfnum.

Flestir þessara svokölluðu hælisleitenda eru nefnilega örugglega oftar en ekki liðhlaupar og föðurlandssvikarar eða jafnvel uppgefnir nýrakaðir bardagamenn spámannsins – hver veit?

Hvað mælir gegn því að veita Bowe Bergdahl liðþjálfa hæli og skjól hér á kostnað íslensks almennings, því hann ferðast sannarlega ekki undir fölsku flaggi og er sannarlega í lífshættu?


mbl.is Óskar eftir náðun forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt dæmi um hlutlægan fréttaflutning Mbl.

Jafnvel einföldustu hlutastarfs skríbentar hér á blaðinu ættu að geta gert sér í hugarlund að það sem lesendur Mbl og reyndar landsmenn allir á þessum síðustu tímum hefðu áhuga á að vita varðandi þessa frétt er hvort þetta ofbeldi tengist flóttamönnum eða hælisleytendum.

Það er undarleg fréttamennska að blaðra um að tvö fórnarlömbin hafi verið bræður og að aðsúgur hafi verið gerður að lögreglu á staðnum, án allra frekari útskýringa.


mbl.is Víðtæk leit að árásarmönnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband