24.2.2009 | 21:39
Persónulýsing
Davíð Oddson er hefur alla tíð verið umdeildur maður. Á öllum stjórnmála ferli hans var hann í vinsældarkosningum jafnan kosinn bæði elskaðasti og jafnframt hataðasti stjórnmálamaður landsins. Þetta segir töluvert um manninn. Hann er klár, fyndinn, listrænn og afgerandi leiðtogi, en svo verður því ekki neitað að hann er fordæmalaus"frekjuhundur"og úr hófi ónærgætinn. Í þessum eftirmálum svika og þjófnaðar sakleysis íslenska lýðveldisins hlýtur maður þó að horfa til þess að aldrei minnist ég þó þess, að þessi umdeildi stjórnmála leiðtogi væri vændur um að vera þjófur eða lygari. Hinir lævísu glæru óþokkar, sem almenningur ætti að beina reiði sinni gegn, eru af öðru sauðarhúsi en hinn fyrirferðarmikli seðlabankastjóri.
Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu mikil áhrif á Bretana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég er hjartanlega sammála þér
Elís Már Kjartansson (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 21:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.