Móðursjúkir Danir.

Líklega áttu dönsk yfirvöld, eða jafnvel einhverjir innfæddir óknyttastrákar heiðurinn af drónafluginu á Amager, sem í ljósi áróðurs þarlendra fjölmiðla, virðist hafa fengið meirihluta dönsku þjóðarinnar hreinlega til að pissa í buxurnar af hræðslu.

Líklega eru íslenskar valkyrjur þó óhultar, því þær ganga líklega hvort sem er með bleyjur alla daga í ljósi voðalegrar Rússagrýlunar, sem hér ríður röftum.

Það blasir auðvitað við að drónafréttin er einungis flutt taugaveikluðum Dönum í þeim tilgangi að bæta við ástæðum fyrir frekari vopnvæðingu Fjórða ríkisins og er það ekki í raun og veru fullkomlega órökrétt að láta sér í fúlustu alvöru detta í hug að Rússar gætu haft einhvern greinanlegan ávinning af því að ögra taugaveikluðum óstöðugum Baunum með svo gjörsamlega tilgangslausu athæfi?


mbl.is „Mikil hætta“ á skemmdarverkum í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Líka í Osló og Malmö ? Nei þetta voru auðvitað fljúgandi furðuhlutir.

Guðmundur Ásgeirsson, 23.9.2025 kl. 12:30

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Æ, þið Pútín snáðarnir vitið þetta náttúrulega betur en nokkur annar.  

Arnór Baldvinsson, 23.9.2025 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og núlli?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband