29.6.2025 | 13:38
Landráðastjórn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur þegar verið kærð fyrir landráð, eins og augljós ástæða er fyrir, en ótrúlega lítið fjallað um málið og aðeins vonandi að ekki hafi verið þaggað niður í Arnari Þór og hans fólki með hótunum eða annars konar góðgæti.
Í aðdraganda síðustu kosninga sem færðu núverandi ríkisstjórnarflokkum völdin, þá voru að venju sett fram ýmiss fögur fyrirheit, en síður þau mál, sem sýnt hefur sig að voru jafnvel helstu markmiðin, en voru varla eða alls ekki nefnd á nafn.
Það hefur síðan komið í ljós að líkt og vænta mátti, að lítið varð um efndir loforða og heitstrenginga, en raunveruleg áform og markmið flokksleiðtogana í stað þess komið fram í dagsljósið.
Líkt og kemur greinilega fram í neyðarópi Samtaka atvinnulífsins, þá er það ljóst að vegið er að öllum helstu atvinnuvegum þjóðarinnar, sem bætist við kolsvart útlit innviða allra og það á ölum sviðum, eins og hverju mannsbarni mætti vera ljóst.
Í stað uppbyggingar og björgunaraðgerða, þá blasir sú hörmulega staðreynd hins vegar við, að leiðtogar Íslands skreyta sig með ókleyfum milljarða samningum við erlend samtök og stofnanir og allt í óþökk og að þjóðinni forspurðri.
Getur það virkilega átt sér stað, að leiðin að hjarta og fjöreggi þjóðarinnar sé sú að knésetja landvættina í orðsins fyllstu merkingu, þannig að sögu blómlega unga lýðveldisins ljúki í raun og veru sem verbúð og herstöð Fjórða ríkis ESB í Norður Atlantshafi?
![]() |
Lýsir miklum áhyggjum í bréfi til valkyrjanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning