25.6.2025 | 14:54
Þjóðverjar vígbúast, enn á ný.
Var ekki samþykkt eftir síðustu stór styrjöld í Evrópu, að hafa taumhald á Þjóðverjum til frambúðar, hvað allan vígbúnað og hervæðingu snertir?
Þjóðverjar eru líklega mesta menningarþjóð Evrópu og örugglega þeir klárustu, en eigi að síður, þá eru þeir grimmir og samviskulausir, líkt og þörf krefst hverju sinni, líkt og t.a.m. margir gyðingar minnast enn.
Allt frá dauða foringjans og sjálfrar hugsjónarinnar, þá hafa undan rústum Þriðja ríkisins skriðið lífvænleg afkvæmi draumsins og náð þeim ótrúlega árangri, að margfaldast og ná sömu tökum á kvistlingum Evrópu, á nýjan leik, enn og aftur.
Það er grátbroslegt að verða vitni að því, að íslensk stjórnvöld bjóði þýskar flugsveitir velkomnar til loftrýmisgæslu yfir Íslandi, þó jafnvel einhverjir afar, eða aðrir ættingjar okkar hafi hreinlega verið drepnir með köldu blóði af þessum sömu germönnum og beiti öllum lymskubrögðum, til að komast undir yfirráð Fjórða Ríkisins.
![]() |
Söguleg ákvörðun í Haag: Stórauka útgjöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Jónatan.
Hvað hefur þú fyrir þér í því að Þjóðverjar séu grimmari og samvikulausari heldur en aðrar þjóðir, getur þú nefnt dæmi um það?
Þvert á móti, fáar þjóðir hafa lýst meiri eftirsjá og verið ötulli við að gera upp fortíð sína, þetta veit ég af eigin reynslu frá fyrri tíð. Þá voru sýndar kvikmyndir og fluttir útvarpsþættir sem fjölluðu um nasistmann og styrjöldina. Í Berlín er stór minningarreitur um gyðingaofsóknirnar og við breiðstræti í Vestur Berlín sá ég minnismerki um rússneska hermenn sem hertóku borgina, ekki er mér kunnugt um að það hafi verið fjarlægt.
Fá eða engin ríki hafa tekið á móti fleira flóttafólki, þ.á m. Palestínumönnum sem hafa sýnt misjafnar þakkir fyrir.
Ég held að þú ættir að skrifa um eitthvað annað sem þú hefur meiri þekkingu á.
Hördur Thormar (IP-tala skráð) 25.6.2025 kl. 17:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning