Dýrkeypt ákvörðun Donalds Trump.

Með þeirri ákvörðun að gera árás á Íran glötuðust öll fyrri áform Trumps um að arfleifð hans yrði sem alþjóðlegur friðarforseti og bjargvættur Bandaríkjanna.

Með þessari stórfelldu árás glataði Trump líklega Friðarverðlaunum Nóbels, sem kjarnorkuríkið Pakistan tilnefndi hann til, aðeins fáum klukkustundum fyrir árásirnar, í þeirri von að hann stæðist kröfur Ísraelsmanna og héldi herjum sínum til hlés.

Með þessari stríðsaðgerð hefur Bandaríkjaforseti opnað fyrir lögmætar gagnárásir og aðgerðir ríkisins sem ráðist var á og gæti það reynst honum og þjóð hans dýrkeypt.


mbl.is Bandaríkin sprengja í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Það grátbroslega við glæsilegt þjóðernislegt slagorð Trumps eftir þetta huglausa skítverk, er að héðan í frá verður MAGA einungis úrelt öfugmæli, en MIGA notað óspart í þess stað, uns hann hrökklast frá völdum, spái ég.

Jónatan Karlsson, 22.6.2025 kl. 04:21

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og átján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband