Föstudagur þrettándi

Lengi hefur þessi dagsetning vakið óskiljanlegan óhug, án fullnægjandi skýringa, en gætu miðlar og sjáendur ekki einmitt hafa séð fyrir þessa atburðarás sem nú er hafin af fullum þunga í Ísrael og Miðausturlöndum?

Það er aðeins vonandi að sá heimsendir sem Biblían fjallar um, nái aðeins yfir þann heim sem þessir spámenn þekktu á þeirra dögum.

Vonandi eru Ragnarök okkar vestrænna þrjóta nokkrum öldum á eftir þeim ósköpum sem gyðingar og margir kristnir eru búnir að tönnlast á öldum saman og gæti einmitt nú á þessari stundu verið að raungerast.


mbl.is Ísrael gerir árás á Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég skal segja þér það Jónatan að ég hef talið að Netanyahú ætli sér einmitt að færa út kvíarnar enn meira. Þetta er herskáasta stjórn í Ísrael frá upphafi og er þá mikið sagt. 

En ég held að það verði ekki auðvelt að hafa hemil á Íran ef það ætlar sér að koma upp kjarnorkuvopnum sem er staðan.

Netanyahu er ógn við heimsfriðinn, kannski meiri ógn en Saddam Hussein nokkurntímann var.

Netanyahu og Trump eru að ógna jafnvæginu sem þarna hefur ríkt. Múslimaríkin láta ekki taka sig endilega í bakaríið svo auðveldlega. Hervæðing gæti þar enn meiri átt sér stað en áður.

Minnumst þess að ekkert hefur dugað til að stöðva Rússland eða halda aftur af því.

Friðartal er víðsfjarri yfirvöldum í Ísrael og Rússlandi og svo firna víða. Heimurinn er brjálaður.

Heimurinn er að klofna enn meira, einstaklingarnir, hóparnir, löndin. Þriðja heimsstyrjöldin er ekki nógu sterkt hugtak til að lýsa þessu.

Við erum að horfa uppá miklu grunntækari klofning en á fyrri hluta 20. aldarinnar, á milli vinstriöfga og hægriöfga. Nú eru fjölskyldur sundraðar, börn gegn foreldrum, konur gegn körlum... allt í upplausn.

Já, guð blessi heiminn, eins og Geir Haarde sagði, "Guð blessi Íslandi".

Ingólfur Sigurðsson, 13.6.2025 kl. 05:27

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Ingólfur.

Vonandi hefur Trump kjark til að halda Bandaríkjunum utan við þessi átök og láta Ísraelsmenn um að taka afleiðingum gjörða sinna.

Auðvitað hefði hann aldrei náð í Hvíta húsið án þess að lofa öllu fögru, en tilfellið er að margir af hans stuðningsmönnum eru síður en svo hrifnir af ægivöldum gyðinga.

John F. Kennedy krafðist þess að Alþjóða kjarnorkumálastofnunin rannsakaði og stöðvaði óheimila auðgun úrans í Dímona verinu í Ísrael þvert á vilja Davíðs ben Gurions, en fáum dögum eftir stjórnarbyltinguna í Dallas 1963, var gefið grænt ljós á friðhelgi versins, sem ekki hefur enn verið hróflað við, eins og allir vita.

Jónatan Karlsson, 13.6.2025 kl. 07:48

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og fjórum?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband