Derhúfur Grindvíkinga ágætt dæmi um íslenskan undirlægjuhátt.

Þetta litla dæmi um smáborgaralegan hugsunarhátt Íslendinga nú á þessum síðustu og verstu tímum ætti auðvitað að hringja öllum mögulegum aðvörunarbjöllum hjá öllu venjulegu fólki.

Þarna í Grindarvík dettur einhverjum sniðugum hjálparsveitarmanni í hug að grínast með MAGA derhúfu Trumps, sem allir mölbúar hafa auðvitað séð og breyta örlítið stafsetningunni og segja MGGA eða Make Grindavík Great Again og græða smá pening fyrir þrotlaust starfið, en auðvitað fór þetta sniðuga grín fyrir viðkvæm brjóst rétttrúnaðar pakksins sem ríður hér því miður öllum röftum, þannig að húfurnar voðalegu sem gætu hafa minnt viðkvæmar sálir á vonda karlinn í Washington, voru samstundis teknar úr allri dreifingu.

P.S.
Óþokkinn ég, gæti alveg trúað að hjálparsveitin í Grindavík gæti selt húfurnar dýrum dómum á svörtu eftir bannfæringuna. Ég væri t,d, til í að eignast eina.


mbl.is Derhúfurnar „misheppnað grín“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og þrettán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband