Til hamingju Ísland.

Í fyrsta sinn á síðustu árum, hefur Ísland, eða viðkomandi stjórnvöld komið fram við Rússa með frambærilega viðeigandi hætti og brugðist við eðlilega við aðkallandi aðstæðum.

Það kemur mér ánægjulega á óvart, að þessu neyðarkalli skipstjórans hafi verið sinnt tafarlaust, án þess að leyta staðfestingar og leyfis æðri stjórnvalda á borð við svokallaðar utanríkis-eða forsætisráðherra okkar, því þá hefði neyðarkallinu sannarlega verið hafnað – í anda leiðtoga Evrópusambandsins og því miður stjórnenda hérlendra strengjabrúða þeirra,sem virðast fara með öll völd sem varða utanríkismál Íslands – að landsmönnum forspurðum.

Verður ekki næsta fórnarlamb rétttrúnaðar hugsjónarinnar að reka Georg Lárusson fyrir að hafa sofið á verðinum og ekki staðið vörð um réttu hagsmunina?


mbl.is Gæslan send að rússneskum togara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Miðað við allt sem þessi hamfarastjórn stendur fyrir þá er

næsta víst að Georg verður rekinn vegna skipulagsbreytinga.

Sigurður Kristján Hjaltested, 31.5.2025 kl. 17:17

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Sigurður.

Sú hugsun verður með degi hverjum ágengari, að manngert hrun og hrörnun þjóðfélagsins endi með þeim ósköpum að eina björgunin frá þjóðargjaldþroti verði að sú að þiggja útrétta krumlu Evrópusambandsins, sem bíður tilbúin á hliðarlínunni.

Jónatan Karlsson, 31.5.2025 kl. 20:23

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

 Einmitt. Nákvæmlega.

Guðjón E. Hreinberg, 5.6.2025 kl. 08:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband