7.5.2025 | 11:10
Sýndargæska íslenskra yfirvalda.
Þessi kurteislega og máttlausa yfirlýsing Íslands, Írlands, Lúxemborgar, Noregs, Slóveníu og Spánar er einungis í þeim tilgangi að friða óánægju og mótmæli þegna viðkomandi þessara landa og mögulega eigin samvisku.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands lýsti því yfir í Kastljósi gærkvöldsins á RÚV að ástandið á Gaza væri reyndar óásættanlegt, en í stað þess að mótmæla með róttækum slitum á viðskipta-og stjórnmálasambandi gagnvart Ísrael, þá vildu þær heldur fremur mótmæla í hópi fleirri ríkja, því stjórnmálasambandið væri svo afskaplega nauðsynlegt til að koma mótmælum okkar beint á framfæri og koma satt best að segja þau hlægilegu rök ráðherrans þó frá eina landinu sem sleit nýlega öllu stjórnmálasambandi við Rússland.
Það eina sem ég sem áhorfandi að allri þessari hræsni get gert, er að reyna að magna upp af veikum mætti anda hinna myrtra barna Palestínu og leggja á og mæla um af öllu mínu hjarta, að þau sem flest ásæki og eyðileggi drauma þessara skinhelgu valdakvenna - í vöku og svefni.
![]() |
Sameiginleg yfirlýsing utanríkisráðherranna um Gasa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það ætti að vera öllum ljóst að hér er ekkert stríð á ferðinni. Í Kastljósi í gær kom fram að ætlunin er útrýming á Gasabúum, Magnús Þorkell Bernharðsson viðurkenndi það, sérfræðingur í miðausturlöndum. Ísraelsmenn vitna í Biblíuna til að réttlæta. Þetta minnir á Gasklefana í WW2. Hér þarf meira en samstöðu og yfirlýsingar. Fyrst notaðar voru þvingunaraðgerðir gegn Rússum, hversvegna ekki þarna? Fréttafólk sem spyr Þorgerði Katrínu spyr í þá átt, en maldrar í móinn. Eins og þú segir, vegna þrýstings er komið með yfirlýsingar.
Kristnir menn sem hafa farið fremst í flokki í að hjálpa Afríku ættu að hjálpa Gasabúum, Biblían er ekki landaafsal eins og Guðjón Hreinberg skrifar. Þarna bjuggu Palestínumenn í aldaraðir og eru upprunalegir á svæðinu. Verið er að taka af þeim landið.
Ingólfur Sigurðsson, 7.5.2025 kl. 17:11
Sæll Ingólfur.
Það er martröð líkast að upplifa þessa útrýmingu saklausra borgara Gaza með skilningi, samúð og ýmist beinum, eða óbeinum stuðningi Vesturlanda.
Jónatan Karlsson, 7.5.2025 kl. 18:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning