Nú tekur steininn úr ruglinu innanlands og utan.

Hér innanlands ber það helst til tíðinda að Umhverfis og skipulagsráð kvennana sem stýra Höfuðborginni um þessar mundir hyggst setja mark sitt á áskapað umferðar öngþveitið sem hér ríkir í þessari litlu borg eða þorpi, með því að bæta við enn einni ljósastýrðri gangbraut á Hringbrautina, svo ekki sé minnst á aðrar hlægilegar aðgerðir, t.a.m. nýjustu óþörfu og örugglega rándýru beygjuljósin við Bústaðaveg, svo eitthvað sé nefnt.

Þegar að erlendum vetvangi kemur, þá verð ég hreinlega að bæta við fordæmingu minni á viðlíka klikkaðri aðkomu enn einnar valkyrjunar, Kristrúnar Frostadóttur að leiðtogafundi hinna viljugu þjóða Evrópu í baráttunni gegn Rússum og það í mínu nafni og Íslendinga allra - og það að okkur forspurðum og gegn vilja og hagsmunum okkar allra.


mbl.is Enn ein gönguljós á Hringbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Hef ekki einu sinni nennt að spekúlera hvaða Davos fulltrúar stjórna borginni núna.

Guðjón E. Hreinberg, 27.3.2025 kl. 17:49

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Guðjón.

Ég veit ekki hvort þú ert ökuljón, en ég keyri út um allar jarðir og hef því samanburðinn á hreinu.

Hvað föðurlandssvikin snertir, þá erum við í sömu súpuskálinni.

Jónatan Karlsson, 27.3.2025 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og fimmtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband