13.2.2025 | 12:39
Íslenska Utanríkisþjónustan sjálfri sér enn og aftur til athlægis.
Fullyrðingar Pete Hegsth Varnarmálaráðherra Bandaríkjana varðandi raunverulega stöðu stríðsrekstursins í Úkraínu, sem komu fram í ræðu hans á NATO fundinum í Brussel í gær, miðvikudaginn 12. febrúar og varpa nýju og breyttu ljósi á allar fullyrðingar fyrri og núverandi Utanríkisráðherra Íslands til þjóðar þeirra - okkar Íslendinga.
Morgunblaðið, RÚV og aðrir fréttamiðlar hér á skerinu, auðvitað að óþekktaranganum Útvarpi Sögu frátalini, vita greinilega ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga og vitna því ekkert í þessi voðalega neikvæðu orð bandaríska ráðherrans, heldur aðeins í andmæli breska varnarmálaráðherrans gegn samningum Trumps og Pútíns að Selenski fjarstöddum og hjá RÚV um almenna óánægju Evrópuríkja við friðarviðræðurnar í heild sinni.
Það næsta sem aumingja Utanríkisráðsfrúrnar geta kviðið fyrir, ofan á mannorðs missinn eru frekari uppljóstranir frá þeim félögum, Musk og Trump varðandi enn kvalafyllri upplýsingar um hinar þekktu Kick back-greiðslur af framlögum til Selenskis og félaga í nafni stuðnings við vopnakaup fyrir heri Úkraínu, sem telja hvað okkar Íslendinga varðar, u.þ.b. 37 milljarða króna, svo framundan eru væntanlega svefnlausar nætur hér hjá einhverjum órólegum ónefndum.
![]() |
Úkraínumál verði ekki rædd án Úkraínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning