Draumur í minningu Hind litlu, um friðsamlega tveggja ríkja lausn.

Ef tekið yrði í taumana og þjóðir heimsins einhentu sér um að stöðva helstefnu zionista í Palestínu, þá mætti á friðsamlegan hátt tengja Gaza svæðið og Vesturbakkann með beinni og breiðri vegtengingu og rústir eyðileggingarinnar yrðu notaðar í uppfyllingu við ströndina, þar sem mætti koma fyrir stórskipahöfn og fyrsta alþjóðlega flugvelli Palestínumanna.

Auðvitað yrði ólöglegar byggðir gyðinga á Vesturbakkanum að víkja og alþjóðlegar friðargæslusveitir að gæta landamæra þessara ólíku þjóða og látið í fyrstu reyna á hvort þær gætu deilt Jerúsalem í bróðerni.

En hryllilegur og ótrúlegur veruleiki dagsins í dag er því miður fjarri þessari draumsýn.

Þjóðir okkar vestræna heims horfa aðgerðalausar á hræðilegt þjóðarmorðið í Palestínu án þess svo mikið sem að lyfta litla fingri, þrátt fyrir að það teljist glæpsamlegt atferli að bregðast ekki til hjálpar, þegar einhver verður vitni að einstakling í háska.

Þó meðferð gyðinga á heimamönnum í Palestínu hafi hafi verið hræðilegri en orð fá lýst, þá er hlutur Bandaríkjamanna í blóðugu landráninu óumdeilanlegur, því ekki nóg með að þeir leggi til vopnin, heldur koma þeir ætíð í veg fyrir allar hamlandi aðgerðir á vegum hinna máttlausu Sameinuðu Þjóða með því að beita ítrekað neitunarvaldi sínu og hver er þá versti sökudólgurinn?

Því miður virðist nýkjörinn forseti Bandaríkjana teljast til þess hóps sem styður útrýmingu saklausra heimamanna Palestínu, þannig að lítil von er um breytingar úr þeirri átt, en líkt og augljós hrörnun Evrópu ber með sér, þá má líkja yfirstandandi umskiptum í Bandaríkjunum við dauðakippi eða fjörbrot þessa voldugasta heimsveldis síðustu aldar, því við blasir, að nýir tímar eru að ganga í garð og ný heimsveldi taka í vaxandi mæli að bæra á sér.

Það sorglega eða grátbroslega við núverandi þróun er því miður, að ef palestínsku þjóðinni verður útrýmt eða rekinn í útlegð, þá segir mér hugur um að þjóðinni Ísrael verði eytt í eldi og eimyrju, líkt og spáð var þegar tjaldið rauða rifnaði á leiðinni á Golgata.


mbl.is Ár frá andláti Hind: Festist í bíl með látinni fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og nítján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband