6.1.2025 | 03:22
Einungis máttlaus sýndarmennska Þorgerðar.
Líkt og að skríðast stórum áberandi krossi í kosningasjónvarpi allra landsmanna, þrátt fyrir að vera t.a.m. sú sem úthýsti kristinfræðslunni úr grunnskólanum, þá er þessi greiðsla til UNRWA og allt hjal um brot á alþjóðalögum einskisverður popúlismi, eins og hún er líka full meðvituð um, fyrir utan þá staðreynd að Bandaríkjamenn og Gyðingar halda ótrauðir áfram fjöldamorðum á Palestínumönnum, jafnt kristnum sem múslimum.
Ef valdamikill Utanríkisráðherra Íslands hefði minnsta áhuga á að styðja fólkið í útrýmingarbúðunum á Gaza, þá myndi hún hafa frumkvæði að tafarlausum slitum á stjórnmálasambandinu við Ísrael og auðvitað öllum öðrum samskiptum við þessa sannkölluðu helfararmeistara - og þar hefði hún örugglega meirihluta Íslendinga sér að baki.
Þessum hryllingi verður að linna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hvers vegna ætti "valdamikill utanríkisráðherra Íslands" að hafa meiri áhuga á að styðja fólk í "útrýmingarbúðunum á Gasa" heldur en nágrannabræður þess? Hvers vegna þarf þetta fólk að leita aðstoðar smáríkis langt norður í höfum? Hafa Katarar, Sádar o.fl. Persaflóaríki ekki fjárhagslega burði til að hjálpa þessum bræðrum sínum og systrum?
Hafa þessi ríki boðist til að hjálpa fólki úr hörmungunum á Gasa og taka það upp á sína arma? Ég bara spyr.
Hördur Thormar (IP-tala skráð) 6.1.2025 kl. 16:00
Hörður Þormar það er þannig að Svíar eru hættir að styðja UNRWA
því herjaði framkvæmdastjórinn á Þorgerði Katrínu og tókst að fá hana til að borga fyrirfram sem tæplega er löglegt?
Getur ráðherra bara ákveðið að flýta greiðslum úr ríkissjóði?
Grímur Kjartansson, 6.1.2025 kl. 16:19
Fín orð. Svo má velta fyrir sér hversu stór pakki erlendu lánin eru, sem yrðu gjaldfelld ef stjórnmálaskörungar Stórastalands tækju upp siðferðilega afstöðu ...
Guðjón E. Hreinberg, 6.1.2025 kl. 17:25
UNRWA er logistical support grúppa fyrir Hamas. Sem slík, hluti af hryðjuverkasamtökum.
Ásgrímur Hartmannsson, 6.1.2025 kl. 18:20
Er hægt að kalla baráttuöfl gegn hernámi hryðjuverkasamtök?
Ja, Þjóðverjar gerðu það í hernumdum löndum í WWII og bæði Begin og Sharon voru eftirlýstir hryðjuverkamenn, svo líkt og ætíð fer það eftir því hvoru megin borðsins maður situr, hvaða augum maður lítur á málið.
Hvað með að framfylgja tveggja ríkja lausninni af ákveðni og hvar í ósköpunum er friðargæslulið SÞ?
Svarið er líklega það, að Gyðingar og Bandaríkjamenn vilja skiljanlega ekki fá það á vetvang og handbendi og aftaníossar þeirra láta sér það einfaldlega léttu rúmi liggja.
Jónatan Karlsson, 7.1.2025 kl. 02:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning