27.9.2024 | 11:00
Hvað þá með að hætta stuðningi við barnamorðin á Gaza?
Auðvitað er fallegt og jákvætt að setja sér göfug markmið, en óneitanlega er holur hljómur í orðum Höllu Tómasdóttur forseta lýðveldisins Íslands, sem styður þó beint og óbeint við þjóðarmorð Ísraela í Palestínu, án þess svo mikið að lyfta litlu fingrunum þeim til aðstoðar og þar að auki að leggja milljarða klafa á íslenskan almenning til kaupa á morðtólum til drápa á Rússum og það auðvitað líka án samþykkis þjóðarinnar.
Svo ég segi nú bara við Forseta, ríkisstjórn og alþingismenn Íslands: Ég vona að ykkur líði vel í dofnum hjörtum ykkar og njótið forréttindanna með leiðtogum ykkar - uns yfir lýkur.
Ef hins vegar umbjóðendur ykkar, þ.e.a.s. þjóðin fengi lýðræðislega að kjósa, þá yrði stjórnmálasambandinu við Ísrael örugglega slitið og ævarandi hlutleysi Íslands undirstrikað.
![]() |
Skiljanlegt að finna til vanmáttar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Með kveðju til "Góða fólksins" : ‘Shocked to the core’: Pro-Israel Arab ‘speechless’ from the left’s support of Hamas
Hördur Thormar (IP-tala skráð) 27.9.2024 kl. 14:07
Það sem hann sagði.
Guðjón E. Hreinberg, 27.9.2024 kl. 14:52
Við finnum að sjálfsögðu til vanmáttar siðferðileg, á meðan við drepum okkar eigin börn í móðurkviði. En ef og þegar við látum af því, náum við siðferðilegum styrk til að fara gegn Hams, í því skini að stöðva þá í að fyrirfara sínum bönum á Gaza?
Guðmundur Örn Ragnarsson, 27.9.2024 kl. 16:07
Íslenska ríkið hefur of mikil völd, það er vandinn.
Það er vegna þess að fólkið almennt vill ekkki taka ábyrgð á eigin lífi.
Svo þá getur fólk bara fengið að taka þátt í öllum þjóðarmorðum allstaðar.
Og fengið að launum atónbombu í hausinn.
Ásgrímur Hartmannsson, 27.9.2024 kl. 22:28
Álútir skulu menn ganga og hoknir í hnjánum!
Og horfa með stillingu og festu á íslenska jörð!
Góða helgi félagar!
Jónatan Karlsson, 28.9.2024 kl. 10:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.